Gylfi Þór komið að fleiri mörkum en á síðustu leiktíð Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 26. desember 2020 23:01 Gylfi Þór fagnar sigurmarki sínu í kvöld. Alex Pantling/Getty Images Gylfi Þór Sigurðsson skoraði sigurmark Everton í kvöld er liðið vann 1-0 útisigur á Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni.
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði sigurmark Everton í kvöld er liðið vann 1-0 útisigur á Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni. Sigur Everton lyftir liðinu upp í 2. sæti ensku úrvalsdeildarinnar þegar liðið hefur leikið 15 leiki. Er liðið tveimur stigum á eftir meisturum Liverpool sem eiga þó leik til góða og stigi á undan Leicester City sem er í 3. sætinu. Markið var þriðja mark Gylfa Þórs á leiktíðinni sem þýðir að hann hefur nú komið að sjö mörkum með beinum hætti. Ásamt mörkunum þremur hefur hann lagt upp fjögur til viðbótar. Í alls 18 leikjum á leiktíðinni hefur Gylfi Þar með komið að fleiri mörkum með beinum hætti en hann gerði í 38 leikjum á síðustu leiktíð. Gylfi Þór lagði upp eitt af tveimur mörkum Everton gegn Arsenal í síðustu umferð og skoraði sigurmarkið gegn Chelsea þann 12. desember. Hann hefur því svo sannarlega átt frábæran desember mánuð. 7 - Gylfi Sigurdsson (7 - 3 goals, 4 assists) now has more direct goal involvements in 18 appearances in all competitions this campaign than he managed in 38 games last season (6). Rejuvenated.— OptaJoe (@OptaJoe) December 26, 2020 Gylfi Þór átti frábæran leik í liði Everton í mjög erfiðum leik í kvöld. Lék hann í „tíunni“ eða í svæðinu á bakvið Dominic Calvert-Lewin sem lék í stöðu fremsta manns. Á tölfræðivefsíðunni WhoScored fékk Gylfi 7.9 í einkunn. Enginn leikmaður átti betri leik en Mason Holgate, hægri bakvörður Everton, fékk sömu einkunn. Gylfi Þór skoraði eins og áður sagði sigurmarkið, átti alls 34 sendingar heppnaðar í leiknum af 40 talsins. Þar af tvær lykil sendingar.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Rauðu djöflarnir verja ekki bikarinn Enski boltinn Tilkynnti að hún væri hætt í hjartnæmu viðtali Handbolti Píla festist í fæti keppanda Sport Sjáðu Benóný stimpla sig inn hjá stuðningsmönnum Stockport Enski boltinn Orri Steinn og félagar steinlágu í Katalóníu Fótbolti Orðinn þjálfari Galdurs eftir að hafa verið rekinn í beinni Fótbolti Munu taka hart á því hversu lengi markvörður heldur á boltanum Fótbolti Var í mótorhjólagengi, sat inni en er nú kominn á Opna breska Golf Kenndi hárvörum um í umdeildu jafntefli Sport Welbeck skaut Brighton áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Hamrarnir hentu frá sér tveggja marka forystu gegn Arsenal Chelsea tapaði óvænt stigum á meðan Hlín tapaði fyrir Rauðu djöflunum Rauðu djöflarnir verja ekki bikarinn Welbeck skaut Brighton áfram Sjáðu Benóný stimpla sig inn hjá stuðningsmönnum Stockport Mateta líður vel þrátt fyrir tæklingu í andlitið Man City sterkari í síðari hálfleik og komið áfram Fyrrverandi markvörður Hattar lagði upp mark í toppslagnum Fólskulegt brot markvarðar Milwall þegar Palace fór áfram Hefur Amorim bætt Man United? Asensio skaut Villa áfram Lýsandi Sky Sports baðst afsökunar á ummælum um United UEFA segir Chelsea vera með dýrasta lið sögunnar Garnacho þarf að splæsa máltíð á allt liðið Segir glottandi Carragher að fara til fjandans Kvartar undan Man. City við Evrópusambandið Hamrarnir héldu Refunum í fallsæti Echeverri má loks spila fyrir Man City „Þú ert að tengja þetta við Rashford“ Liverpool rak stjóra kvennaliðsins Ten Hag segir leikmenn í dag of viðkvæma Komnir með þrettán stiga forskot Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Haaland sneri aftur og var hetjan Darwin Núnez langt frá efstu mönnum í klúðruðum dauðafærum „Fyrr skal ég dauður liggja“ Slot í bann og stýrir Liverpool ekki í kvöld Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Chelsea skrapaði botninn með Southampton Sjá meira