Skoðun

Falsvon

Leifur Finnbogason skrifar

Á liðnu ári hafa margir átt um sárt að binda. Efnahagsþrengingar í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveirunnar komu illa við marga. Samkomutakmarkanir komu sömuleiðis illa við marga. Það er erfitt að geta ekki hitt sína nánustu í lengri tíma, en fólk lagði það á sig, enda var það til þess gert að vernda viðkomandi. Erfiðast við samkomutakmarkanir var þó eflaust að takmarka þurfti fjölda fólks í jarðarförum. Það er erfitt að vera sá sem þarf að velja og hafna hver fær að fylgja ástvinum til grafar. Það er erfitt að þurfa að fylgjast með jarðarförum í gegnum internetið. Þetta fer gegn félagsvild mannkynsins. En þetta gerðum við. Við reyndum að standa saman.

Nú í haust hefur nokkrum blautum tuskum verið kastað í andlit okkar. Við vitum að það er stöku fólk á vappi sem telur sig yfir grímunotkun og félagsforðun hafið. Við höfum eflaust mörg rekið okkur á einhvern sem er í trássi við sóttvarnarreglur af einskærri sjálfselsku og hugsað til þeirra fórna sem við höfum fært.

Nú um jólin læddust vonbrigði yfir jólahald margra þegar fréttir bárust af ráðherra sem var í trássi við sóttvarnarreglur, að því virðist af einskærri sjálfselsku. Viðkomandi ráðherra baðst afsökunar og saumaði saman sögu um að allt hafi þetta verið eintómt úps, þó öllu líklegra sé að ráðherra hafi haft fulla vitneskju um hvað hann var að gera, og eflaust hefur hann reynt að tala um fyrir lögreglunni þegar hún mætti. Hvað annað rak lögregluna til að skrifa jafnítarlega dagbókarfærslu í dagbók sem venjulega er óskaplega þurr lestur?

Traust margra á sóttvarnaraðgerðum er brostið, enda augljóst að engir eftirmálar verða vegna sjálfselsku ráðherra. Veiran er viðvarandi í samfélaginu og við losnum ekki við hana á meðan álíka viðburðir fá að grassera undir yfirborðinu, verndaðir af ráðherra ríkisstjórnar Íslands. Framtíðarskipuleggjendur viðburða munu enda vísa í úps ráðherra til að afsaka framtíðarsamkomur. Það er ekki nema von að við spyrjum okkur til hvers við séum að þessu. Erum við að fórna samskiptum við okkar nánustu svo ráðherra geti djammað með vinum sínum?

Það er enginn ábyrgðarkúltúr í íslensku samfélagi. Það er svo sem ekki fréttnæmt hérlendis. En í alþjóðasamhengi er einstaklega skrýtið að svona mál komi upp án þess að ráðherra segi af sér. Í Tékklandi sagði heilbrigðisráðherra af sér fyrir að hafa verið grímulaus. Á Íslandi segir enginn af sér, enda eru stjórnmálamenn hér spilltari en í Tékklandi, þó hér ríki falsvon um annað.

Höfundur er vonsvikinn borgari.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×