Látinn laus eftir samræður við lögreglu Kolbeinn Tumi Daðason og Margrét Helga Erlingsdóttir skrifa 22. desember 2020 16:22 Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, er stödd á Seyðisfirði ásamt þremur öðrum ráðherrum til að virða fyrir sér aðstæður eftir náttúruhamfarir. Vísir/vilhelm Lögreglan á Austurlandi telur ekki ástæðu til frekari aðgerða gagnvart manninum sem sagður er hafa hótað Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra í dag.
Upplýsingar bárust lögreglunni um meintar hótanir um hádegisbil. Lögreglan hefur síðan þá rætt við manninn og telur, eftir þær samræður, að engin ástæða sé til grípa til ráðstafana. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kristjáni Ólafi Guðnasyni, yfirlögregluþjóni á Austurlandi. Ríkislögreglustjóri hefur þá sagt við fjölmiðla í dag að ekki sé talin hætta á ferðum. Ræddi við Björn Leví símleiðis þegar lögreglu bar að garði Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, segir frá því á Facebook síðu sinni nú síðdegis að umræddur maður hafi hringt í hann í dag til að útskýra mál sitt. Símtalið hafi staðið yfir þegar lögreglu bar að garði hjá manninum fyrr í dag. Björn segir að manninum hafi augljóslega verið mikið niðri fyrir. Hann væri svekktur vegna aðgerðaleysis stjórnvalda. Að hans mati hefði mátt sjá skriðuföllin fyrir því fyrir tveimur árum hafi verið haldinn fundur um mögulegar aurskriður fyrir austan. Fólk hafi vitað að þetta gæti gerst en að ekkert hafi verið gert til að koma í veg fyrir hamfarirnar. Í eyrum Björns hafi maðurinn hljómað eins og áhyggjufullur íbúi Seyðisfjarðar sem hafi þrátt fyrir aðstæður útskýrt málið á yfirvegaðan en tilfinningaþrunginn hátt. Gagnrýnt viðbrögð stjórnvalda Karlmaðurinn er íbúi á Seyðisfirði og heitir Jonathan Moto Bisagni. Hann segist hafa hringt í nokkra þingmenn í morgun og Elizu Reid forsetafrú vegna hamfaranna á Seyðisfirði. Í framhaldi af þeim símtölum hafi hann verið handtekinn, að eigin sögn. Lögregla segist hafa rætt við Jonathan. Hann hefur átalið stjórnvöld fyrir viðbrögð við skriðunum á Seyðisfirði. Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri er stödd á Seyðisfirði ásamt fjölda lögreglumanna.Vísir/Vilhelm „Það féllu aurskriður að húsinu mínu, þar sem við og krakkarnir mínir voru, og við þurftum að yfirgefa húsið á þriðjudag, en samt var bærinn ekki rýmdur þegar skriðuföllin komu á fimmtudag. Það þýðir ekki að segja að menn hafi ekki getað vitað þetta þegar svona úrkoma kemur á örfáum dögum,“ sagði Jonathan í viðtali við Morgunblaðið á sunnudaginn. Þá gerði hann athugasemdir við að forsætisráðherra hefði sagt að Íslendingar stæðu saman á þessum tímum. „Mikið af fólkinu hérna eru ekki Íslendingar,“ sagði Jonathan sem er bandarískur en af ítölskum og japönskum uppruna. Hann kom fyrst til Seyðisfjarðar 2015 og hefur búið þar síðan 2018. Jonathan segir í samtali við Mbl.is síðdegis að lögreglan í Reykjavík hafi hringt í sig og tjáð honum að hann hefði hótað Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra. Þess vegna vildi lögreglan á Seyðisfirði ná af honum tali. Hann kannaðist ekki við það að hafa hótað neinum. Forsætisráðherra ekkert tjáð sig Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra vildi ekki tjá sig um málið við fréttamenn fyrr í dag og kemur ekki inn á það í stöðuuppfærslu á Facebook síðdegis. Málið virðist því ekki hafa fengið mikið á hana eftir nokkra uppákomu í hádeginu í upplýsingamiðstöðinni á Seyðisfirði. „Heimsóttum Seyðisfjörð og Egilsstaði í dag. Ummerkin eftir skriðuföllin eru sláandi enda líklega umfangsmestu skriður í mörg hundruð ár. En um leið er það ótrúlegt að ekki hafi orðið manntjón og gengur reyndar kraftaverki næst,“ segir Katrín. „Ræddum við íbúa sem sumir hverjir hafa enn ekki fengið að snúa heim. Allir voru þeir æðrulausir gagnvart hrikalegri stöðu og hlýja og samstaða alltumlykjandi. Unnið er að rannsóknum á fjallinu. Við blasir hreinsunarstarf og uppbygging en Seyðfirðingar horfa til framtíðar. Við förum saman í þetta verkefni.“
Lögreglumál Aurskriður á Seyðisfirði Múlaþing Tengdar fréttir „Það er verið að handtaka mig af lögreglunni fyrir að segja hug minn“ Sá sem hótaði Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra hefur sent héraðsfréttaritinu Austurfrétt tvö SMS-skeyti. 22. desember 2020 14:46 Lögregla rannsakar hótanir í garð forsætisráðherra á Seyðisfirði Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra bárust hótanir þar sem hún er stödd á Seyðisfirði í dag ásamt þremur ráðherrum úr ríkisstjórninni. Þetta herma heimildir fréttastofu. Uppnám varð í Ferjuhúsinu, upplýsingamiðstöð Seyðisfjarðar, rétt fyrir tólf í dag. 22. desember 2020 12:34 Mest lesið Kári og Sveinn til liðs við Arnar Þór Innlent Starfsfólkið slegið eftir brunann Innlent Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í Fellsmúla Innlent Rafmagnsleysi á stórum hluta landsins Innlent Ljúfsár hinsta heimsókn í Blóðbankann Innlent Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Innlent Fylgi Sjálfstæðisflokksins aldrei mælst minna Innlent Sló út við reglubundið viðhald Innlent Ekki sniðugt að hafa öll eggin í sömu öskjunni Innlent Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Erlent Fleiri fréttir Segir langt gengið til þóknast forsjárhyggjusinnum Metóánægja með ríkisstjórnina en enn færri ánægðir með stjórnarandstöðuna Horfði á haförn og lax berjast fyrir lífi sínu út um stofugluggann Ráðlagt að slökkva á rafmagnstækjum Sló út við reglubundið viðhald Allar hugmyndir um verkfallsaðgerðir á ís Rafmagnsleysi á stórum hluta landsins Ekki sniðugt að hafa öll eggin í sömu öskjunni Minnkandi losun en umfram úthlutanir Íslands Sigmundur góður sessunautur af því að hann mæti sjaldan Vaxtalækkun í Seðlabanka og ákall frá Blóðbanka Ljúfsár hinsta heimsókn í Blóðbankann Kári og Sveinn til liðs við Arnar Þór Starfsfólkið slegið eftir brunann Bein útsending: Forseti Íslands og landlæknir á Forvarnardeginum Fylgi Sjálfstæðisflokksins aldrei mælst minna Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í Fellsmúla Líkamsárás og eignaspjöll Leggja til neyðaraðgerðir til að bregðast við „ófremdarástandi“ Fundi aftur frestað til morguns Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Ráðamenn ríkis og borgar hallast að því að halda áfram með Hvasshraun Segir gagnrýnina ósvífna og ósanngjarna Ólafur Ragnar breytti stöðu forsetaembættisins „Með því alvarlegra sem ég hef séð frá Vinnueftirlitinu“ Mælirinn fullur vegna vanvirðingar á slysstað Vita af tíu Íslendingum í Ísrael Nýjustu vendingar í Ísrael og bróðir í sárum Harður árekstur við Ingólfsfjall Gestur greiðir ekki krónu þó að pallaolía hafi hellst í bílinn Sjá meira
„Það er verið að handtaka mig af lögreglunni fyrir að segja hug minn“ Sá sem hótaði Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra hefur sent héraðsfréttaritinu Austurfrétt tvö SMS-skeyti. 22. desember 2020 14:46
Lögregla rannsakar hótanir í garð forsætisráðherra á Seyðisfirði Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra bárust hótanir þar sem hún er stödd á Seyðisfirði í dag ásamt þremur ráðherrum úr ríkisstjórninni. Þetta herma heimildir fréttastofu. Uppnám varð í Ferjuhúsinu, upplýsingamiðstöð Seyðisfjarðar, rétt fyrir tólf í dag. 22. desember 2020 12:34