Innlent

Tónlistarskóli Rangæinga slær í gegn á netinu

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Krakkarnir, sem eru að læra á fiðlu í Tónlistarskóla Rangæinga og munu spila í beinu streymi á morgun klukkan 17:00. Fjölbreytt úrval af jólalögum verða á efnisskránni.
Krakkarnir, sem eru að læra á fiðlu í Tónlistarskóla Rangæinga og munu spila í beinu streymi á morgun klukkan 17:00. Fjölbreytt úrval af jólalögum verða á efnisskránni. Aðsend

Mikil ánægja er með framtak Tónlistarskóla Rangæinga, sem streymir níu jólatónleikum nemenda skólans nú í desember. Fiðlusveit skólans, sem átti að fara til Reykjavíkur á morgun og spila á þremur stöðum verður í stað þess í skólahúsnæðinu á Hvolsvelli þar sem allur heimurinn getur fylgst með hópnum spila í gegnum netið.

Um 300 nemendur á öllum aldri eru í Tónlistarskóla Rangæinga.Í desember hafa nemendur farið út um allt og spilað á stofnunum og hjá fyrirtækjum, en þannig er það ekki í ár vegna kórónuveirunnar. 

Fiðludeild skólans hefur t.d. alltaf farið til Reykjavíkur og spilað á barnadeild Hringsins, Rjóðrinu og líknardeild Landsspítalans, það átti að gerast á morgun, mánudaginn 14. desember, en í stað þess verða nemendur staddir á Hvolsvelli og streyma tónleikunum beint klukkan 17:00 í gegnum Facbooksíðu skólans. 

Í leiðinni ætla þau að láta gott af sér leiða og hafa tónleikana líka áheitatónleika til styrktar Einstökum börnum.

 Crissie Guðmundsdóttir er fiðlukennarar skólans, ásamt Guðmundi Pálssyni.

„Þannig að við ákváðum bara að gera þetta í staðinn, því tónlistarskólinn er að streyma öllum jólatónleikum sínum núna í desember,“ segir Chrissie.

Crissie Guðmundsdóttir, fiðlukennari við Tónlistarskóla Rangæinga, hlakkar mikið til tónleikanna á morgun, 14. desember klukkan 17:00.Guðmundur Pálsson er einnig fiðlukennari við skólann.Aðsend

Crissie segir að streymistónleikar skólans hafi algjörlega slegið í gegn hjá foreldrum og aðstandendum nemenda, auk annarra áhugasamra. Tónleikarnir á morgun verða sjöunda af alls níu tónleikum skólans á netinu.

„Við ætlum að bjóða upp á allskonar jólalög og allskonar skemmtilegar útsetningar en þetta eru sem sagt krakkar alveg frá byrjendastigi, sem byrjuðu núna í haust á fiðlu og sem eru komin mjög langt í námi og eru komin langleiðin á miðstig,“ segir Chrissie.

Tónleikarnir á morgun verða líka áheitatónleikar þar sem safnað verður peningum fyrir Einstök börn.Aðsend



Fleiri fréttir

Sjá meira


×