Innlent

Lög­reglan bankaði upp á í beinni út­sendingu

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
ElísabetGuðmundsdóttir

Lögregla bankaði upp á hjá Elísabetu Guðmundsdóttir lýtaskurðlækni fyrr í dag og boðaði hana til skýrslutöku vegna brots á sóttvarnarlögum. Atvikið átti sér stað á meðan Elísabet var í viðtali í beinni útsendingu á Harmageddon á X-inu 977.

Mál Elísabetar, sem gagnrýnt hefur sóttvarnaraðgerðir íslenskra yfirvalda, hefur vakið talsverða athygli eftir að hún kom til landsins á föstudaginn frá Danmörku. Hún kaus að fara hvorki í skimun né sóttkví við komuna til landsins og var mætt á mótmæli á Austurvelli klukkan 13 daginn eftir. 

Fréttastofa greindi frá því fyrir um helgina að mál hennar væri komið inn á borð lögreglu

Í viðtalinu má heyra þegar lögreglumenn banka heima hjá henni og boða hana til skýrslutöku vegna máls sem lögreglan hefur til rannsóknar.

Elísabet: „Hvað eruð þið að gera?“

Lögreglumaður: „Birta þér kvaðningu.“

Elísabet: „Kvaðningu hvað?“

Lögreglumaður: „Þú átt að mæta í skýrslutöku.“

Elísabet forvitnaðist þá um ástæður þess af hverju hún átti að mæta í skýrslutöku. Hvöttu lögreglumenn hana þá til þess að hafa samband við lögreglumanninn sem færi með rannsókn málsins. 

Sagði hún þá lögreglumennirnir yrðu að banka aftur þegar þeir væru búnir að komast að því af hverju væri verið að boða hana til skýrslutöku. Má því næst heyra hurð vera lokað.

Lögreglumennirnir koma síðan aftur síðar og segja að málið varði brot á sóttvarnarlögum, nánar tiltekið brot á skyldu fólks að sæta sóttkví við heimkomu.

Heyra má samskipti Elísabetar og lögreglumannanna í spilurunum hér að neðan.

Klippa: Lögreglumenn boða Elísabetu í skýrslutöku í beinni útsendingu - Fyrri hluti
Klippa: Boðuð í skýrslutöku til lögreglu í beinni útsendingu í Harmageddon - Seinni hluti

Afskipti lögreglu af henni í dag í beinni útsendingu er staðfesting þess efnis að lögregla hafi mál hennar til rannsóknar. Dæmi eru um að fólk hafi verið sektað hér á landi um hundruð þúsunda króna fyrir að brjóta sóttvarnalög, til dæmis með því að vera ekki sóttkví eftir komu til landsins.


Tengdar fréttir

Elísa­bet ætlar í mál við ríkis­lög­reglu­stjóra

Elísabet Guðmundsdóttir, lýtaskurðlæknirinn sem vakti mikla athygli fyrir helgi þegar hún hafnaði því að fara í skimun á landamærunum eða fjórtán daga sóttkví við komu hingað til lands frá Danmörku, hyggst nú höfða mál á hendur embætti ríkislögreglustjóra.

Mál­flutningur lýta­skurð­læknisins ekki í takt við raun­veru­leg vísindi

Sóttvarnalæknir segir málflutning lýtaskurðlæknis, sem fór hvorki í sóttkví né sýnatöku við komu til landsins um helgina, um kórónuveiruna alrangan. Margsannað sé að einkennalausir smiti út frá sér. Hann vonar að fólk taki ekki mark á orðum læknisins, sem ekki er lengur með lækningaleyfi á Íslandi.

Þór­ólfi þykir miður að sjá kollega tala með þeim hætti sem Elísa­bet gerir

„Mér þykir miður þegar mínir kollegar sem hafa gengið í gegnum ákveðið nám og fengið ákveðna reynslu tala með þessum hætti en við því er ekkert að gera en það hefur ekkert verið skoðað sérstaklega hvort það eigi að meðhöndla það einhvern veginn öðruvísi þótt fólk tali með þessum hætti.“

Mál Elísabetar á borði lögreglu

Mál Elísabetar Guðmundsdóttur lýtaskurðlæknis sem fór hvorki í skimun né sóttkví við komuna til landsins er á borði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt heimildum fréttastofu.

Fór hvorki í skimun né sóttkví og var mætt á mótmælin í dag

Elísabet Guðmundsdóttir lýtaskurðlæknir sem gagnrýnt hefur sóttvarnaraðgerðir íslenskra yfirvalda kom til landsins í gærkvöldi eftir dvöl í Danmörku. Hún kaus að fara hvorki í skimun né sóttkví við komuna til landsins og var mætt á mótmæli á Austurvelli klukkan 13 í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×