Innlent

Klemmdi annan ökumann á milli vörubíls og sendibíls eftir rifrildi

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Rifrildið virðist hafa átt sér stað í umferðinni. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Rifrildið virðist hafa átt sér stað í umferðinni. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Vilhelm

Ökumaður vörubíls hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa klemmt ökumann sendibíls á milli bílanna tveggja eftir rifrildi ökumannanna á milli. Héraðsdómur telur að bílstjóra vörubílsins hafi þó stafað ógn af hinum ökumanninum.

Ökumaður vörubílsins var ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás en samkvæmt lögregluskýrslu hafði mönnunum tveimur lent saman.

Þannig er því lýst í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, samkvæmt lögregluskýrslu, að mennirnir hafi byrjað að öskra á hvorn annan.

Rifrildið virðist hafa leitt til þess að sá sem klemmdist hafi stigið út úr sendibílnum og öskrað á ökumann vörubílsins. Sá sem var á vörubíl hringi í lögreglu og óskaði eftir aðstoð þar sem verið væri að hóta honum lífláti.

Ekki kemur fram í dómi héraðsdóms á hvaða tímapunkti rifrildisins maðurinn hafi ákveðið að klemma hinn manninn á milli vörubílsins og sendibílsins, en það gerðist engu að síður, með þeim afleiðing að sá sem klemmdist hlaut minniháttar áverka.

Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness.Vísir/Vilhelm

Í dómi héraðsdóms kemur fram að dómari í málinu hafi hlustað á upptökur af símtölum mannanna tveggja við Neyðarlínu og lögreglu. Af þeim megi ráða af ökumanni vörubílsins í máli hafi stafað ógn af ökumanni sendibílsins. Hann hafi þó gerst sekur um líkamsárás.

Með vísan til þessa og þeirrar staðreyndar að maðurinn játaði brot sitt skýlaust taldi héraðsdómur að fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi væri hæfileg refsing.

Auk þess þarf bílstjóri vörubílsins að greiða bílstjóra sendibílsins 400 þúsund krónur í skaðabætur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×