Innlent

Karl Steinar stýrir al­þjóða­sviði ríkis­lögr­eglu­stjóra

Atli Ísleifsson skrifar
Karl Steinar Valsson hefur störf í nýju embætti um áramótin.
Karl Steinar Valsson hefur störf í nýju embætti um áramótin. Lögreglan

Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjónn miðlægrar rannsóknardeildar hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, hefur verið ráðinn yfirlögregluþjónn alþjóðasviðs ríkislögreglustjóra.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef lögreglunnar, en Karl Steinar á að baki 35 ára starfsferil innan lögreglunnar.

„Hann hefur verið stjórnandi ýmissa eininga frá 1997 nú síðast yfirlögregluþjónn miðlægrar rannsóknardeildar hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 

Þar áður starfaði hann sem tengslafulltrúi Íslands hjá Europol ár árunum 2014-2018 þar sem hann var meðal annars ábyrgur fyrir stefnumótun og framtíðarstefnu Íslands á sviði samvinnu við aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi. 

Auk lögreglumenntunar hefur Karl Steinar fjölbreytta menntun að baki, meðal annars í verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun, MBA frá Háskólanum í Reykjavík sem og stjórnendaþjálfun frá Bandarísku alríkislögreglunni,“ segir í tilkynningunni

Karl Steinar mun hefja störf hjá embætti ríkislögreglustjóra 1. janúar næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×