Þingmenn slógust og köstuðu svínaiðrum Samúel Karl Ólason skrifar 27. nóvember 2020 11:09 Þingmenn stjórnarandstöðunnar mótmæla ætlunum um að leyfa innflutnings kjöts frá Bandaríkjunum. EPA/RITCHIE B. TONGO Þingmenn slógust og helltu úr fötum af svínaiðrum við mótmæli vegna ætlunar yfirvalda í Taívan um að leyfa innflutning kjöts frá Bandaríkjunum.
Til átaka kom á þingi Taívan í Taípei í dag og slógust þingmenn og köstuðu svínaiðrum í hvorn annann á þingi. Deilurnar eru til komnar vegna reglubreytinga um að leyfa innflutning svína- og nautakjöts frá Bandaríkjunum. Su Tseng-chang, forsætisráðherra, ætlaði að flytja ræðu um frumvarpið þegar stjórnarandstöðuþingmenn komu í veg fyrir það með því að hella úr fötum af svínaiðrum í þinghúsinu. Meðlimir meirihlutans reyndu að stöðva þá og kom til handalögmála þeirra á milli. AP fréttaveitan segir forseta Taívan hafa samþykkt þessa breytingu í ágúst og að mögulega sé um undirbúning fyrir viðskiptasamning við Bandaríkin að ræða. Til stendur að fella niður bann á innflutningi svína- og nautakjöts frá Bandaríkjunum í janúar. Þá verður innflutningur kjöts sem inniheldur efnið ractopamine leyfilegur. Það efni er bannað í matvælaframleiðslu víðsvegar um heiminn og þar á meðal í Evrópusambandinu. Þeirri ákvörðun hefur verið harðlega mótmælt. Meðlimir stjórnarandstöðunnar mættu á þing í svörtum bolum í dag sem á stóð: „Standið gegn ractopamine-svínakjöti“.
Taívan Bandaríkin Mest lesið Bað soninn um að halda sig í herberginu meðan árásin átti sér stað Innlent Afstýrði vopnuðu ráni í Kópavogi: „Mér fannst ég þurfa að gera eitthvað“ Innlent Fundu tvö dæmi um Kjartann en samt virðist enginn hafa borið nafnið Innlent Sorg í Mosfellsbæ eftir skemmdarverk á liðsrútunni Innlent „Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Innlent Reyndist vera eftirlýstur Innlent „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Innlent Þjóðverjar ganga að kjörborðinu: „Vinstrið er búið“ Erlent Jens Garðar býður sig fram til varaformanns Innlent Borgin, utanríkismálin og kjaradeila kennara Innlent Fleiri fréttir Þjóðverjar ganga að kjörborðinu: „Vinstrið er búið“ Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Segja Musk ekki stýra DOGE en neita að nefna yfirmann Grét í faðmi Rihönnu eftir sýknudóminn Virðist kenna Úkraínumönnum um stríðið og stöðu mála Frans páfi með lungnabólgu í báðum lungum Fullyrðir að aðeins Trump hefði getað komið á friðarviðræðum Nítján af 21 útskrifaðir af sjúkrahúsi Setja fúlgur fjár í herinn: Segir ástandið verra en í kalda stríðinu CIA flýgur herdrónum yfir Mexíkó Sjá meira