Viðskipti innlent

Sakar starfs­hóp um sam­ráðs­leysi og að notast við gamlar og úr­eltar tölur

Atli Ísleifsson skrifar
Ólafur Stephensen er framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda.
Ólafur Stephensen er framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. Vísir/Vilhelm

Félag atvinnurekenda hefur gert alvarlegar athugasemdir við hugmyndir starfshóps heilbrigðisráðherra sem hefur lagt til að breytingar verði gerðar á skattkerfinu með það að leiðarljósi að sætindi hækki um tuttugu prósent í verði.

Starfshópnum var falið að gera aðgerðaáætlun um beitingu efnahagslegra hvata til eflingar lýðheilsu. Í skýrslu starfshópsins er lagt til skattahækkun á ýmsa gos- og svaladrykki svo þeir hækki í verði um 20 prósent. Í næsta skrefi yrðu skattar hækkaðir á sælgæti, orku- og próteinstykki, kex, kökur og sætabrauð þannig að þær vörur hækki einnig um 20 prósent.

„Gamlar og úreltar tölur“

Félag atvinnurekenda gagnrýnir í erindi sem sent hefur verið til Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra, notkun embættis landlæknis og starfshópsins á „gömlum og úreltum tölum“ líkt og það er orðað. Fjögur erindi FA til heilbrigðisráðherra, þar sem boðið hafi verið samstarf um að leiða fram réttar tölur um þróun sykurneyslu landsmanna, hafi verið hunsuð.

„Þá gagnrýnir FA samráðsleysi við gerð tillagnanna, en starfshópurinn leitaði t.d. aldrei eftir sölutölum gosdrykkja, sem FA bauð fram og sýna að neysla á sykruðu gosi hefur minnkað hratt undanfarinn áratug, án sykurskatts. Þess í stað styðst hópurinn við gömul gögn Landlækniembættisins, auk frumniðurstaðna úr mataræðiskönnun, sem ekki hafa verið birtar opinberlega og engin leið er að sannreyna.

Tillögur hópsins eru fullar af innri mótsögnum - engan skatt á til dæmis að leggja á dísætar mjólkurvörur en hins vegar á að skattleggja sykurlausa drykki ef þeir innihalda sítrónusýru. Þá leggur hópurinn til að skattkerfið verði flækt stórlega og virðist ekki hafa hugsað út í hvernig eigi að hrinda tillögunum í framkvæmd,“ segir í tilkynningu frá FA.

Fari í 24 prósenta þrepið

Í tillögum starfshópsins er meðal annars lagt til að vörugjöld verði lögð gosdrykki og flest sætindi auk þess sem óhollar vörur af flestum toga falli í 24 prósenta þrep virðisaukaskattsins en ekki 11 prósenta eins og nú er.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×