Innlent

Grafalvarlegt að hafa þyrluna ekki til taks við þessar aðstæður

Birgir Olgeirsson skrifar
Þór Þorsteinsson er formaður Landsbjargar.
Þór Þorsteinsson er formaður Landsbjargar. Vísir/Baldur Hrafnkell

Ekkert ferðaveður verður á vesturhelmingi landsins í dag vegna suðvestan storms. Formaður Landsbjargar segir grafalvarlegt að þyrla Landhelgisgæslunnar sé ekki til taks við slíkar aðstæður.

Ekkert ferðaveður verður á vesturhelmingi landsins í dag vegna suðvestan storms. Formaður Landsbjargar segir grafalvarlegt að þyrla Landhelgisgæslunnar sé ekki til taks við slíkar aðstæður.

Eftir hádegi mun suðvestan stormur eða rok ganga yfir vesturhelming landsins með dimmum éljum.

Versta veðrið á vestanverðu landinu

„Það er aðeins skárra veður á austanverðu landinu, minni vindur og ekki búist við úrkomu þar. En á vestanverðu landinu er þetta mjög slæmt veður og ekkert ferðaveður í rauninni,“ segir Teitur Arason veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands.

Appelsínugul veðurviðvörun hefur verið gefin út fyrir Faxaflóa og Breiðafjörð sem gildi frá hádegi og fram undir miðnætti. Gul veðurviðvörun hefur verið gefin út fyrir höfuðborgarsvæðið, Suðurlands, Vestfirði, Strandir og Norðurland vestra.

„Vestantil á landinu er versta veðrið. Þar er stormur og rok og dimm él. Síðan á morgun er aðeins skárra veður en þó er þetta allhvass eða hvass vindur og áfram él á morgun.“

Hann ráðleggur fólki að fresta ferðalögum, eða í það minnsta huga vel að aðstæðum áður en lagt er í hann. Veðrið mun síðan skána á laugardagsmorgun og verður aðgerðalítið veður um helgina.

Áhyggjur af þyrluleysinu

Björgunarsveitir eru í viðbragðsstöðu en þyrla Landhelgisgæslunnar ekki til taks vegna kjaradeilna flugvirkja.

„En það er auðvitað grafalvarlegt að við skulum ekki hafa þyrluna til taks við þessar aðstæður sérstaklega. Vegna þess að þær eru ekki bara mikilvægur hlekkur í viðbragðskeðjunni heldur eru þyrlurnar sömuleiðis í rauninni ákveðið öryggistæki fyrir viðbragðsaðila, meðal annars björgunarsveitir,“ segir Þór Þorsteinsson, formaður Landsbjargar.

Hvernig gæti þetta haft áhrif á ykkar störf í dag?

„Þetta hefur í rauninni áhrif á allt viðbragð, hvort sem það erum við eða aðrir sem sinnum því vegna þess að það eru staðir þar sem þyrlan er miklu fljótari á staðinn. Hún er oft eini kosturinn sem hægt er að nýta.“

Fundur stendur yfir

Samninganefndir flugvirkja Landhelgisgæslunnar og ríkisins sitja enn á samningafundi sem boðað var til í morgun en verkfall flugvirkja Gæslunnar sem sinna viðhaldi á björgunarþyrlum hófst þann 5. nóvember.

Engin þyrla hefur verið til taks hjá Landhelgisgæslunni frá því eftir miðnætti í nótt vegna reglubundinnar skoðunar einu starfhæfu þyrlu Gæslunnar. Ljóst er að engin þyrla verður tiltæk að minnsta fram á helgina.

Dragist verkfallið á langinn verður engin þyrla tiltæk hjá Gæslunni eftir 14. desember.


Tengdar fréttir

Þjálfun áhafna Landhelgisgæslunnar úr skorðum

TF-GRO eina starfhæfa þyrla Landhelgisgæslunnar fer í reglubundið eftirlit á morgun sem mun að minnsta kosti taka tvo daga. Hún þarf síðan að fara í lengri skoðun hinn 12. desember og ef ekki hafa náðst samninga við flugvirkja þá verður allur flugfloti Gæslunnar lamaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×