Innlent

Lög­reglu­manni vikið frá störfum vegna hand­tökunnar í Hafnar­firði

Atli Ísleifsson skrifar
Frá vettvangi handtökunnar.
Frá vettvangi handtökunnar.

Einn lögreglumaður hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hefur verið leystur undan starfsskyldum sínum tímabundið vegna handtöku manns í Hafnarfirði síðastliðinn mánudag.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu en málinu var vísað til rannsóknar hjá embætti héraðssaksóknara líkt og kom fram í annarri tilkynningu frá lögreglunni fyrr í dag.

Greint var frá málinu í Fréttablaðinu í dag. Þar sagði að maður hafi verið stöðvaður vegna gruns um vörslu fíkniefna og hann hafi sagst vera með Covid-19. 

Var haft eftir sjónarvottum að fjórir lögreglumenn sem handtóku manninn við Hvaleyrarholt í Hafnarfirði hafi gengið allt of langt í aðgerðum sínum og sökuðu lögreglumennina um gróft ofbeldi. 

Í blaðinu lýsa sjónarvottarnir því að einn lögreglumannannana hafi slegið inn handtekna ítrekað í höfuðið með kylfu þar til hann rotaðist og féll í jörðina. Þá er bent á að samkvæmt reglum um vadbeitingu lögreglumanna sé óheimilt að beina höggi að höfði.

Í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vegna málsins segir að málinu hafi verið vísað til héraðssaksóknara. Á meðal málsgagna séu upptökur úr búkmyndavélum lögreglumanna á vettvangi.

Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari staðfesti við Vísi fyrr í dag að málið væri komið á borð embættisins og að skoðun væri hafin á gögnum málsins.


Tengdar fréttir

Skoða hvort lögreglumaður verði sendur í leyfi

Til skoðunar er hvort einn lögreglumaður verðir sendur í leyfi á meðan rannsókn Héraðssaksóknara á meintu ofbeldi við handtöku er í gangi. Þetta segir Halla Bergþóra Björnsdóttir lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×