Tíska og hönnun

Algengar fegurðarmýtur sem rugla fólk í rýminu

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Það er mikið um mýtur og töfraráð tengd fegrunarmeðferðum og förðun. Ingunn Sig og Heiður Ósk segjast hafa prófað þær flestar.
Það er mikið um mýtur og töfraráð tengd fegrunarmeðferðum og förðun. Ingunn Sig og Heiður Ósk segjast hafa prófað þær flestar. Samsett/Getty

Vex hárið hraðar ef þú ferð oftar í klippingu? Má nota hárlakk til að láta andlitsfarðann endast lengur? Eru kornaskrúbbar góðir gegn bólum? Í nýjum þætti af hlaðvarpinu HI Beauty fara þær Ingunn Sig og Heiður Ósk yfir algengar fegurðarmýtur sem þær hafa heyrt í gegnum árin, flestar þeirra eru eitthvað sem þær hafa sjálfar trúað á einhverjum tímapunkti. 

Ingunn og Heiður Ósk hafa margra ára reynslu þegar kemur snyrtivörum, hári og förðun og höfðu því af nógu af taka. Þær eru eigendur Reykjavík Makeup School og halda úti samfélagsmiðlum og hlaðvarpi undir nafninu HI Beauty. Í næsta mánuði fara þær svo af stað með þætti hér á Vísi, en nánar verður fjallað um það síðar.

Klippa: HI Beauty hlaðvarp - Fegurðarmýtur

Mýturnar sem rætt er um í hlaðvarpsþættinum eru:

1. Að hárið vaxi hraðar ef þú klippir endana

2. Að það sé gott að nudda andlitið með klaka

3. Rakstur andlitshára valdi þykkari og dekkri hárum 

4. Að setja tannkrem á bólur 

5. Náttúrulegar húðvörur eru alltaf góðar fyrir húðina

6. Farði leyfir húðinni þinni ekki að anda

7. Að fara í ljós hjálpar húðinni minni og þurrkar upp bólur

8. Brúnka verndar húðina gegn sólbruna

9. Ég má ekki nota neitt með olíu því ég er með olíukennda húð

10. Það skiptir ekki máli í hvora áttina þú pússar neglurnar

11. Dýrar snyrtivörur eru betri en ódýrar snyrtivörur

12. Að pumpa maskarann þinn gerir augnhárin lengri

13. Vaselín er gott á þurrar varir 

4. Kornaskrúbbar eru góðir gegn bólum

15. Besti staðurinn fyrir ilmvötnin þín er í ísskápnum

16. Það er hægt að nota hárlakk til að festa farða á andlitinu

Hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan en þær byrja að tala um fegurðarmýturnar á mínútu 24. Í þættinum tala þær einnig um tiktok trend, fegurðarfréttir og svo tekur Hillary Duff óvænt yfir umræðuna. 


Tengdar fréttir

Eftirminnilegasta förðunin frá rauða dreglinum

Förðunarfræðingarnir Heiður Ósk og Ingunn Sig fóru yfir sín uppáhalds augnablik á rauða dreglinum í gegnum árin, í hlaðvarpinu sínu HI Beauty. Þær ræddu bæði förðun, hár og húð stjarnanna.

Stoltar af því að sameina krafta sína

Förðunarskólinn Reykjavík Makeup School tilkynnti í kvöld breytingar, þar sem þær Heiður Ósk Eggertsdóttir og Ingunn Sigurðardóttir hafa bæst við eigendahópinn. Reykjavik Makeup School er elsti förðunarskólinn á Íslandi, stofnaður í október 2013 af förðunarfræðingunum Söru Dögg Johansen og Sigurlaugu Dröfn Bjarnadóttur sem báðar hafa starfað við fagið í áratug.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.