Innlent

Full­yrt að ó­eining sé á stjórnar­heimilinu vegna sótt­varna­að­gerða

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ríkisstjórnin á ríkisráðsfundi á Bessastöðum í lok september.
Ríkisstjórnin á ríkisráðsfundi á Bessastöðum í lok september. Vísir/Vilhelm

Fullyrt er í forsíðufrétt Fréttablaðsins í dag að óeining sé innan stjórnarmeirihlutans um sóttvarnaaðgerðir heilbrigðisráðherra.

Það sé ekki síst í kjölfar síðustu auglýsinga ráðherrans um og eftir helgina, fyrst þegar hertar samkomutakmarkanir tóku gildi á landinu öllu á mánudag og svo í gær þegar enn hertari reglur tóku gildi á höfuðborgarsvæðinu.

Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að þrír ráðherrar Sjálfstæðisflokksins hafi verið í hópi efasemdamanna, þau Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamálaráðherra. Ráðherrar Vinstri grænna og Framsóknarflokks standi aftur á móti sem einn maður að baki heilbrigðisráðherra.

Heimildir Fréttablaðsins herma einnig að allra síðustu daga hafi dregið úr óeiningunni vegna þess á hve miklu skriði kórónuveirufaraldurinn er hér innanlands, en síðustu tvo daga hafa tæplega 200 manns greinst með veiruna.

Það hafi hins vegar vakið furðu bæði ráðherra og þingmanna Sjálfstæðisflokksins að heilbrigðisráðherra samþykkti nýjar tillögur sóttvarnalæknis um hertar samkomutakmarkanir á höfuðborgarsvæðinu án þess að ræða þær fyrst í ríkisstjórn líkt og venja hefur verið fyrir.

Á meðal þeirra þingmanna Sjálfstæðisflokksins sem hafa tjáð efasemdir sínar opinberlega eru Sigríður Á. Andersen og Brynjar Níelsson. Brynjar lýsti nú síðast í gær á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar verulegum efasemdum um lögmæti smitrakningar í faraldrinum og vísaði þá til þess að greiðslukortafærslur hefðu verið nýttar við smitrakningu í nokkrum tilvikum.

Samkvæmt frétt Fréttablaðsins eru þó fleiri þingmenn Sjálfstæðisflokksins óánægðir en aðeins þeir sem hafa gagnrýnt sóttvarnaaðgerðirnar opinberlega. Þannig hafi margir í þingliðinu áhyggjur af því að of langt sé gengið í því að leyfa sérfræðingum að ráða ferðinni og að meðalhófs sé ekki gætt við útfærslu einstakra aðgerða. Þá séu einnig miklar áhyggjur af því að ekki sé nægilegt tillit tekið til bæði efnahagslegra og félagslegra afleiðinga aðgerðanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×