Lífið

Fluttu frá Svíþjóð og búa núna ásamt börnunum tveimur í skólarútu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Falleg fjölskylda sem ætlar að njóta lífsins næstu árin.
Falleg fjölskylda sem ætlar að njóta lífsins næstu árin.

Þau Ben og Mia eru nýflutt frá Svíþjóð til Bandaríkjanna og ætla að búa í rútu næstu árin.

Áður höfðu þau byggt smáhýsi í Svíþjóð og búið þar í einhvern tíma. En núna er á dagskrá að ferðast um Bandaríkin í rútunni á meðan börnin eru ung, en þau eru bæði undir tveggja ára aldri.

Parið tók rútuna í gegn og breyttu henni í fallegt heimili á hjólum þar sem meðal annars er skemmtilegt leikrými fyrir börnin.

Um er að ræða gamla bandaríska skólarútu sem er í dag einstaklega vel heppnað heimili fyrir þessa vísitölufjölskyldu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.