Innlent

Forsætisráðherra segir fulla ástæðu til að óttast veldisvöxt útbreiðslunnar

Heimir Már Pétursson skrifar
Forsætisráðherra segir fulla ástæðu til að óttast að útbreiðsla kórónuveirunnar sé komin í veldisvöxt og nú verði allir að leggjast á eitt við að hefta útbreiðslu veirunnar.
Forsætisráðherra segir fulla ástæðu til að óttast að útbreiðsla kórónuveirunnar sé komin í veldisvöxt og nú verði allir að leggjast á eitt við að hefta útbreiðslu veirunnar. Vísir/Vilhelm

Forsætisráðherra segir fulla ástæðu til að óttast að útbreiðsla kórónuveirunnar sé kominn í veldisvöxt. Þess vegna sé nauðsynlegt að grípa til hertari sótttvarnaaðgerða á höfuðborgarsvæðinu.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra reiknar með að hertari aðgerðir á höfuðborgarsvæðinu verði auglýstar von bráðar, jafnvel síðar í dag.

Forsætisráðherra reiknar með að fjarlægðartakmarkanir verði hertar sem og að undanþágur frá samkomutakmörkunum verði endurskoðaðar. Þær snúa meðal annars að leikhúsum og íþróttaviðburðum.Stöð 2/Egill

„Það sem við sjáum með þessum mikla fjölda smitaðra er að veiran er auðvitað búin að dreifa sér út um allt samfélag og hún er gríðarlega skæð. Smitar víða. Þannig að þetta er verulegt áhyggjuefni. Ég hef verið í samskiptum við sóttvarnayfirvöld í morgun og veit til þess að þau eru að skoða að leggja til hertar aðgerðir sérstaklega hér á höfuðborgarsvæðinu,” segir Katrín.

Góður árangur hafi náðist í fyrri bylgjum faraldursins og hún hafi trú á að það takist nú. Það kalli hins vegar á mjög samstilltar aðgerðir sem allir verði að taka þátt í. Hægt sé að ganga lengra í fjarlægðartakmörkunum sem enn séu einn metri og endurskoða undanþágur frá tuttugu manna samkomutakmörkunum sem sóttvarnayfirvöld séu að skoða.

Klippa: Katrín Jakobsdóttir ræðir hertar aðgerðir

„Ég held að staðan sé hreinlega þannig þegar við sjáum þessa miklu fjölgun í hópi þeirra sem hafa smitast. Núna eru hátt í átta hundruð manns í smitaðir í einangrun. Þetta er gríðarlegur fjöldi. Við sjáum líka að dreifingin er mjög mikil. Þannig að þá er mjög mikilvægt að grípa fast inn í til að ná stjórn á ástandinu,” segir forsætisráðherra.

Hingað til hefur útbreiðsla veirunnar ekki náð veldisvexti í samfélaginu. En forsætisráðherra segir fulla ástæðu til að óttast að nú sé það að gerast.

„Það er full ástæða til að óttast það þegar við sjáum svona tölur. Við erum búin að hafa alltaf tvö leiðarljós fyrir framan okkur í þessum faraldri. Annars vegar að forgangsraða lífi og heilsu fólks og hins vegar að lágmarka samfélagsleg og efnahagsleg áhrif. Nú sjáum við aftur á móti álag á heilbrigðiskerfið okkar fara mjög vaxandi vegna þessara miklu veikinda fólks og það skiptir máli að grípa fast inn í,” sagði Katrín Jakobsdóttir skömmu fyrir hádegi.


Tengdar fréttir

96 börn nú í ein­angrun

Alls eru nú 96 börn sautján ára og yngri í einangrun eftir að hafa greinst með Covid-19.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×