Innlent

550 nemendur og 50 starfsmenn í sóttkví á Selfossi

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Samtals eru 600 nemendur og starfsmenn skólans komnir í sóttkví.
Samtals eru 600 nemendur og starfsmenn skólans komnir í sóttkví. Magnús Hlynur Hreiðarsson.

„Nú er mikilvægt að ganga fumlaust til verka, halda ró og rökhugsun. Við munum byggja á reynslunni frá í vor þegar skólastarfinu var sniðinn þröngur stakkur,“ segir Birgir Edwald, skólastjóri Sunnulækjarskóla á Selfossi en 550 nemendur skólans og 50 starfsmenn hafa verið sendir í sóttkví eftir að tveir nemendur og einn starfsmaður skólans greindust með Covid-19. 

Birgir Edwald, skólastjóri Sunnulækjarskóla á Selfossi.Magnús Hlynur Hreiðarsson.

„Ég vil nota tækifærið og þakka foreldrum og starfsmönnum, sem hafa lagt sig fram um að leysa verkefnið með samstöðu og launsarmiðaðri hugsun,“ bætir Birgir við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×