Innlent

Tryggingagjald lækkað tímabundið

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra á nýyfirstöðnum blaðamannafundi.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra á nýyfirstöðnum blaðamannafundi. vísir/vilhelm

Full endurgreiðsla virðisaukaskatts vegna átaksins Allir vinna verður framlengd út árið 2021.

Þá verður tryggingagjald lækkað tímabundið til loka árs 2021 og felst lækkunin í því að tryggingagjald verður ekki tekið af kjarasamningsbundnum launahækkunum sem koma til framkvæmda um næstu áramót.

Þetta er á meðal þeirra átta aðgerða sem ríkisstjórnin hyggst grípa til svo tryggja megi frið á vinnumarkaði og Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, kynnti á blaðamannafundi nú fyrir stundu.

Fram kom í máli hennar að heildarkostnaður við aðgerðirnar sem ríkisstjórnin boðar nú geti numið allt að 25 milljörðum króna.

Kostnaður við að framlengja fulla endurgreiðslu virðisaukaskatts með átakinu Allir vinna nemi átta milljörðum króna og að kostnaður við lækkun tryggingagjalds nemi fjórum milljörðum króna.

Í viðtali við fréttastofu eftir blaðamannafundinn sagði Katrín aðspurð að lækkun tryggingagjaldsins í prósentum væri 0,25%.

Fjárstuðningur, skattaívilnanir og aukin áhersla á nýsköpun og matvælaframleiðslu

Aðrar aðgerðir ríkisstjórnarinnar eru fjárstuðningur við rekstraraðila sem orðið hafa fyrir verulegu tekjufalli vegna faraldursins, skattaívilnanir vegna grænna fjárfestinga, aukin áhersla á nýsköpun og matvælaframleiðslu, úrbætur í skipulags- og byggingamálum, umbætur á lífeyriskerfinu og á vinnumarkaði og að frumvörp sem styðja Lífskjarasamninginn verða lögð fram.

Þessi aðgerðapakki ríkisstjórnarinnar kemur í kjölfar funda sem formenn stjórnarflokkanna hafa átt undanfarna tvo daga með forystu Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands.

SA og ASÍ greinir á um hvort forsendur lífskjarasamningsins séu brostnar. Telur SA svo vera en ASÍ er á öndverðum meiði.

Vegna þessarar stöðu boðaði SA til atkvæðagreiðslu um uppsögn samningsins sem hefjast átti í gær. Henni var hins vegar frestað til hádegis í dag.

Framkvæmdastjórn SA situr nú fund þar sem hún fer yfir aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar.

Samkvæmt heimildum fréttastofu er viðbragða að vænta frá SA fljótlega upp úr hádegi. Á meðal þess sem ákveða þarf á fundi SA er hvort fresta eigi atkvæðagreiðslunni.

Stjórnvöld kynntu í dag átta aðgerðir sem ætlað er auka umsvif í íslensku efnahagslífi og styðja aðila vinnumarkaðarins...

Posted by Katrín Jakobsdóttir on Tuesday, September 29, 2020

Fréttin var uppfærð kl. 12:21.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×