Erlent

Rússneskir tölvuþrjótar réðust á ráðgjafa Biden

Samúel Karl Ólason skrifar
Joe Biden, forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins.
Joe Biden, forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins. AP/Patrick Semansky

Starfsmenn Microsoft létu forsvarsmenn forsetaframboðs Joe Biden nýverið vita af því að rússneskir tölvuþrjótar, sem taldir eru á vegum ríkisins, hefi reynt árásir á helsta ráðgjafafyrirtæki framboðsins. Fyrirtækið heitir SKDKnickerbocker og á í nánu samstarfi við framboð Biden og aðra Demókrata og hefur komið að minnst sex forsetaframboðum. Tölvuþrjótarnir rússnesku eru sagðir hafa reynt að brjóta sér leið inn í tölvukerfi fyrirtækisins í tvo mánuði.

Þetta kemur fram í frétt Reuters fréttaveitunnar sem hefur heimildir fyrir því að tölvuþrjótunum hafi ekki tekist ætlunarverk sitt.

Stjórnvöld Rússlands hafa stutt framboð Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, með áróðri og öðrum aðferðum.

Tom Burt, aðstoðarforstjóri Microsoft, segir í bloggfærslu að tölvuþrjótar hafi beint árásum sínum að 6.912 manns sem starfi hjá 28 stjórnmálastofnunum, fyrirtækjum og samtökum. Engin árás virðist þó hafa heppnast hingað til.

Eins og frægt er laumuðu sömu rússneskir tölvuþrjótar sér inn í tölvukerfi landsnefndar Demókrataflokksins í aðdraganda forsetakosninganna 2016. Tölvupóstar landsnefndarinnar voru í kjölfarið birtir af Wikileaks.

Afskipti yfirvalda í Rússlandi af forsetakosningum í Bandaríkjunum eiga sér að miklu leyti stað á samfélagsmiðlum en nýverið komst upp um rússneska útsendara sem stofnuðu gervifréttasíðu til að ná til vinstri sinnaðra kjósenda. Ritstjórar síðunnar voru ekki raunverulegir en raunverulegar manneskjur voru fengnar til að skrifa fyrir síðuna, undir fölskum forsendum.

Þar voru starfsmenn rússnesku Netrannsóknastofnunina, eða Internet Research Agency. Það er rússneskt fyrirtæki sem meðal annars gerir einnig út tilbúin nettröll á samfélagsmiðlum og dreifir falsfréttum.

Þessu lýstu starfsmenn IRA sem „upplýsingahernaði“ fyrir kosningarnar 2016.

Sjá einnig: Upplýsingahernaður háður úr „Tröllaverksmiðju“ í Pétursborg

Fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna opinberaði í dag að úkraínski þingmaðurinn Andriy Derkach hefði verið settur á lista yfir aðila sem koma að kosningaafskiptum Rússa. Í yfirlýsingu frá ráðuneytinu segir að Derkach hafi verið „útsendari“ Rússa í rúman áratug.

Þrír starfsmenn IRA voru einnig settir á listann.

Derkach rataði í fréttir vestanhafs í fyrra þegar hann hitti Rudy Giuliani, einkalögmann Trump. Þá lét þingmaðurinn Giuliani fá upplýsingar sem áttu að koma niður á Joe Biden. Þær upplýsingar sem Giuliani fékk hafa ekki reynst á rökum reistar.

Embættismenn í Bandaríkjunum hafa staðfest að afskiptum Rússa af kosningunum í nóvember sé ætlað að styðja Trump. Ríkisstjórn Trump hefur þó sömuleiðis haldið því fram að yfirvöld í Kína og Íran séu einnig að reyna að hafa afskipti af kosningunum og þau ríki styðji Biden.

New York Times segir að starfsmenn Microsoft hafi einnig orðið varir við tölvuþrjóta frá Kína og Íran. Kínverjar eru þó sagðir beita sér meira gegn Demókrötum en Repúblikönum, sem er þvert á það sem Trump-liðar hafa haldið fram.

Íranir hafa reynt árásir á tölvukerfi landsnefndar Repúblikana en án árangurs.

Háttsetur embættismaður í Heimavarnaráðuneyti Bandaríkjanna kvartaði nýverið yfir því að honum hafi verið skipað að hætta að dreifa upplýsingum um kosningaafskipti Rússa, því það léti Trump líta illa út.

Repúblikanar á öldungadeild Bandaríkjaþings eru að rannsaka Demókrata og Úkraínu. Demókratar segja þá vera að ýta undir áróður og samsæriskenningar frá Rússlandi. Demókratar hafa meðal annars sakað Repúblikana um að byggja rannsóknir sýnar á gögnum frá Derkach.


Tengdar fréttir

Vara við „Rauðri hillingu“ á kjördag

Sérfræðingar eru byrjaðir að vara við því að niðurstöður forsetakosninganna í Bandaríkjunum í nóvember, gætu tekið miklum breytingum eftir kosninganóttina sjálfa.

Biden mælist enn með töluvert forskot

Útlit er fyrir að landsfundir Demókrata og Repúblikana hafi haft lítil áhrif á viðhorf kjósenda fyrir forsetakosningarnar í nóvember. Joe Biden, frambjóðandi Demókrataflokksins, er enn með talsvert forskot gegn Donald Trump, forseta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×