Um 800 þúsund gert að flýja heimili sín í Japan Atli Ísleifsson skrifar 6. september 2020 08:41 Haishen mun fara yfir eyjuna Kyushu í dag og mun fellibylurinn ganga á land í Suður-Kóreu á morgun, mánudag. EPA
Japönsk yfirvöld hafa beint því til 810 þúsund manna í fjórum héruðum í suðvesturhluta landsins að yfirgefa heimili sín og leita skjóls þegar í stað vegna yfirvofandi komu fellibylsins Haishen. Búist er við að fellibylurinn muni sækja enn frekar í sig veðrið í dag og vindhraðinn ná allt að 45 metrum á sekúndu, samhliða miklu úrhelli. Haishen mun fara yfir eyjuna Kyushu í dag og mun fellibylurinn ganga á land í Suður-Kóreu á morgun, mánudag. Haishen herjar á íbúa á svæðinu einungis fáeinum dögum eftir að fellibylurinn Maysak gekk þar yfir, en hann var einn sá öflugasti til að ganga yfir heimshlutann í fjölda ára. BBC segir frá því að loka hafi þurft verksmiðjum, skólum og verslunum víðs vegar um vesturhluta Japans vegna fellibyljanna og þá hafa flug- og lestarsamgöngur raskast verulega. Ríkisstjórn Japans kemur saman til neyðarfundar síðar í dag vegna málsins. Því hefur verið beint til alls fimm milljóna manna að vera í startholunum og vera reiðubúin að flýja heimili sín með skömmum fyrirvara.
Japan Tengdar fréttir Leita skips með 43 skipverjum og sex þúsund nautgripum Japanska strandgæslan leitar nú við afleit veðurskilyrði að 43 skipverjum flutningaskips sem talið er að hafi sokkið suðvestur af landinu. 3. september 2020 08:52 Mest lesið „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Innlent Ölvaður ökumaður keyrði á umferðareyju og reyndi að flýja Innlent Allt að tuttugu stiga hiti í dag Veður N1-mót og Dyrfjallahlaup í skítaveðri Innlent Lögregla vopnaðist og skotvopn haldlagt Innlent Eldur kviknaði inni á veitingastað í Ármúla Innlent Miklar framkvæmdir á Kirkjubæjarklaustri fyrir unga fólkið Innlent Yfirgáfu skarkalann í borginni og gerðust ferðaþjónustubændur Innlent Fannst fyrir botni Birnudals Innlent Tveir í haldi lögreglu vegna meintrar skotárásar Innlent Fleiri fréttir Frakkar ganga til sögulegra kosninga Sextán drepnir í loftárás á skóla Skortur á Ozempic hefur leitt til ólöglegrar starfsemi Nefna Mílanóflugvöll í höfuðið á Berlusconi Beryl lék Mexíkó grátt Umbótasinni bar sigur úr býtum í Íran Heitir því að klára baráttuna og sigra Trump Reeves skipuð fjármálaráðherra fyrst breskra kvenna Sunak segir af sér og hættir sem leiðtogi Tímamót í samningaviðræðum en enn langt í land Stórsigur Verkamannaflokksins á kostnað Íhaldsflokksins Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn Verkamannaflokkurinn með stórsigur samkvæmt útgönguspám Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Ákvörðun um refsingu Trump frestað Sjá meira
Leita skips með 43 skipverjum og sex þúsund nautgripum Japanska strandgæslan leitar nú við afleit veðurskilyrði að 43 skipverjum flutningaskips sem talið er að hafi sokkið suðvestur af landinu. 3. september 2020 08:52