Lífið

Auðunn Blöndal selur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Smekkleg eign í Fossvoginum. 
Smekkleg eign í Fossvoginum.  Eignamyndir/Elvar /vilhelm

Fjölmiðlamaðurinn Auðunn Blöndal hefur sett íbúð sína við Ánaland í Fossvoginum á sölu.

Um er að ræða 140 fermetra íbúð á þriðju hæð í fjölbýlishúsi. Húsið var byggt 1983 og eru alls þrjú svefnherbergi inni í íbúðinni.

Bílskúr fylgir eigninni. Auðunn hefur búið í nokkur ár í Ánalandinu en hann eignaðist sitt fyrsta barn á síðasta ári og er í sambandi með Rakel Þormarsdóttur.

Fasteignamat eignarinnar er rúmlega 57 milljónir en ásett verð er 71,9 milljónir. Íbúðin hefur að mestu leyti verið tekin í gegn að innan.

Í stofunni er fallegur steinsteyptur arinn en hér að neðan má sjá myndir af eigninni.

Skemmtilegt fjölbýlishús á góðum stað.
Falleg, opin og björt stofa. 
Eldhúsið og stofan í einu samliggjandi rými.
Baðherbergið hefur verið tekið í gegn. 
Hjónaherbergið er stórt og rúmgott. 
Barnaherbergið þar sem drengurinn þeirra hefur verið í fyrsta árið.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.