Innlent

Fimm greindust innan­lands

Atli Ísleifsson skrifar
0DA9C3C992448AE77296F279202B35ADAAB64F3A2449EF2E381C917C3F903A9E_713x0
Vísir/Vilhelm

Alls greindust fimm með virkt kórónuveirusmit innanlands síðasta sólarhringinn, annan daginn í röð. 

Þá greindust átta með kórónuveirusmit á landamærunum - einn með virkt smit, einn mældist með mótefni, en beðið er niðurstöðu mótefnamælingar í tilvikum sex.

Tveir af þeim fimm sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví, þrír ekki. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni covid.is.

Eins og stendur eru 95 í einangrun og fækkar um fjóra milli daga. Þá eru 720 í sóttkví og fer þeim fækkandi, en 848 voru í sóttkví í gær. 24.226 hafa lokið sóttkví frá því að faraldurinn hófst hér á landi.

Samkvæmt tölum á covid.is liggur enginn á sjúkrahúsi af völdum veirunnar. Frá upphafi faraldursins hafa tíu látist af völdum Covid-19 hér á landi.

581 einkennasýni voru tekin í gær á sýkla- og veirufræðideildinni og 1.042 sýni voru tekin á landamærunum. Þá voru tólf sýni tekin í skimun hjá Íslenskri erfðagreiningu.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur er 17,2, en var 16,9 í gær. Þá er nýgengi landamærasmita nú 7,4, en var 8,2 í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×