Innlent

Sakar ríkislögreglustjóra um að „skipta um hest í miðri á“

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Sigríður Björk Guðjónsdóttir er ríkislögreglustjóri.
Sigríður Björk Guðjónsdóttir er ríkislögreglustjóri. Vísir/Vilhelm

Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri hefur afturkallað þá launasamninga sem forveri hennar í starfi gerði við yfirlögregluþjóna- og aðstoðaryfirlögregluþjóna á síðasta ári. Að minnsta kosti einn þeirra ætlar með málið fyrir dómstóla. RÚV greindi fyrst frá.

Samkomulagið, sem gert var við tvo yfirlögregluþjóna og sjö aðstoðaryfirlögregluþjóna, hafði það í för með sér að föst yfirvinna var færð inn í grunnlaun lögregluþjónanna og hækkaði þannig lífeyrisréttindi þeirra.

Fjallað hefur verið um það að Sigríður ætli sér að vinda ofan af samningum en í frétt RÚV segir að hún hafi afturkallað samningana, þeir séu ekki í samræmi við lög. Í frétt RÚV segir að með vísan til kjarasamnings og stofnanasamnings verði launasamsetningu og launaröðun breytt, þannig að lífeyrisréttindi starfsmannanna rúmist innan gildandi lagaheimildar, að mati embætti ríkislögreglustjóra. Þetta sé lokaniðurstaða málsins af hálfu embættisins.

Telur að verið sé að skipta um hest í miðri á

Þeir starfsmenn sem samkomulagið var gert við hafa andmælt áformum um að vinda ofan af því, og málinu virðist ekki vera lokið af þeirra hálfu.

Þannig segir Óskar Bjartmarz, yfirlögregluþjónn hjá embættinu og einn af þeim sem umræddir samningar náðu til, í samtali við Vísi að ríkislögreglustjóri hafi tekið umrædda ákvörðun á nýjum forsendum, ekki þeim sem komu fram í lögfræðiáliti sem embættið lét vinna fyrir sig.

„Þetta horfir þannig við mér að það var strax í upphafi búið að taka ákvörðun um að gera þetta. Lögfræðiálit sem var notað í upphafi er ríkislögreglustjóri búinn að viðurkenna að standist ekki. Þá er bara fundnar nýjar málsaðstæður til að halda málinu áfram. Það er bara svo einfalt, það er skipt um hest í miðri á,“ segir Óskar.

Hann muni fara yfir málið með lögfræðingi Landssambands lögreglumanna eftir helgi með það að markmiði að leita til dómstóla vegna málsins. Óskar á von á því að minnsta kosti einhverjir aðrir af þeim sem samkomulagið náði til fari sömu leið og hann.

 „Þeim sem ég hef heyrt í þá eru menn ekki sáttir,“ segir Óskar. „Það eru allavega fleiri en ég sem vilja fara með þetta fyrir dómstóla.“


Tengdar fréttir

Nánari svör hafi ekki fengist frá Ríkis­lög­reglu­stjóra

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segir að eftir að umsögn frá Kjara- og mannnauðssýslu ríkisins hafi fengist um kjarasamning sem Haraldur Johannessen gerði við undirmenn sína hafi ekki fengist nánari svör frá ríkislögreglustjóra.

Býst við að ágreiningurinn verði að dómsmáli

Ríkislögreglustjóri á fastlega von á því að fyrirhugaðar breytingar á samningum við yfirlögregluþjóna og aðstoðaryfirlögregluþjóna verði að dómsmáli. Hún segir það ekki vera réttlátt að fámennur hópur í starfsliðinu njóti sérlífeyriskjara sem aðrir geri ekki.

Áliti ríkislögreglustjóra verður andmælt

Lögmaður Landssambands lögreglumanna telur lögfræðiálit sem Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri hefur aflað ekki standast. Hann vinnur að lögfræðiáliti þar sem sjónarmiðum þess er andmælt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×