Innlent

Trompetleikur, hákarl, harðfiskur, ópal, möndlur og kóngabrjóstsykur

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Ingibjörg Lárusdóttir var fararstjóri hópsins en hún bjó, sem barn í nokkur ár í Grikklandi.
Ingibjörg Lárusdóttir var fararstjóri hópsins en hún bjó, sem barn í nokkur ár í Grikklandi. Magnús Hlynur Hreiðarsson.

Trompetleikur, hákarl, harðfiskur, ópal, möndlur og kóngabrjóstsykur heillaði ferðamenn frá Grikklandi upp úr skónum í lok hringferðar þeirra um landið. Síðasti viðkomustaður þeirra var brúin milli heimsálfa á Reykjanesi.

Sautján Grikkir voru í ferðinni sem lauk um síðustu helgi. Fararstjóri var Ingibjörg Lárusdóttir, sem bjó í Grikklandi, sem barn í nokkur ár og talar því tungumálið reiprennandi. 

Hópurinn kom víða við í hringferð sinni og var heillaður af landi og þjóð. Á síðasta viðkomustað hópsins, „Brú milli heimsálfa“ á Reykjanesi, kom Ingibjörg hópnum á óvart því hún spilaði á trompet og bauð í leiðinni upp á hákarl og íslenskt brennivín, ásamt tópas, kóngabrjóstsykri og möndlur - allt ekta íslenskt.

Það vakti mikla athygli Grikkjanna þegar Ingibjörg spilaði á trompetinn sinn fyrir hópinn.Magnús Hlynur Hreiðarsson.

„Því miður þá sjáum við kannski ekki mikið af ferðamönnum á næstunni en vonandi skiljum við eftir fallega minningu í hjarta þeirra um landið okkar fallega,“ segir Ingibjörg.

Ingibjörg segir það hafa verið mjög sérstakt að ferðast með hópinn um landið þegar lítið sem ekkert af öðrum erlendum ferðamönnum var á ferðinni.

„Já, vonandi líður ekki á löngu þangað til að landið fyllist aftur. Allavega veit ég að þau eru ofboðslega hrifin og það er fullt af Grikkjum, sem bíða eftir því að koma til landsins.“

Grikkirnir ætluðu ekki að trúa því hvað veðrið gæti verið gott á Íslandi. Ingibjörg gat ekki hvatt hópinn án þess að spila þjóðsöng Grikkja .

Panagiotis Iliadis, einn af ferðamönnunum frá Grikklandi, sem var heillaður af Íslandi og ekki síst veðrinu, sem hópurinn fékk á ferð sinni um landið, alls staðar var sól og blíða.Magnús Hlynur Hreiðarsson.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×