Innlent

Sex innanlandssmit í gær

Sylvía Hall skrifar
Kórónuveiran á bráðamótökunni í Fossvogi
Kórónuveiran á bráðamótökunni í Fossvogi

Sex greindust með kórónuveiruna á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans í gær og voru fimm í sóttkví. Tveir bíða eftir niðurstöðum úr mótefnamælingu eftir landamæraskimun. 

Þetta kemur fram í nýjustu tölum á covid.is. 

Alls eru nú 117 í einangrun samanborið við 115 í gær en sjö hafa lokið einangrun milli daga. Einn liggur á sjúkrahúsi vegna Covid-19 en er ekki á gjörgæslu. 

919 eru nú í sóttkví og fjölgar þeim um 69 milli daga. Flestir eru í sóttkví á höfuðborgarsvæðinu eða alls 699.

291 sýni var tekið á sýkla- og veirufræðideildinni í gær og 1.365 við landamærin.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur fór úr 17,2 í 18,3. Þá helst nýgengi landamærasmita í 12,3 líkt og undanfarna daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×