Fótbolti

Boðar risapartý í júní í staðinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Josip Ilicic skoraði fernu í leiknum í gærkvöldi en það var enginn í stúkunni til að sjá það.
Josip Ilicic skoraði fernu í leiknum í gærkvöldi en það var enginn í stúkunni til að sjá það. Vísir/Getty
Stuðningsmenn spútnikliðs Meistaradeildarinnar verða bíða með að fagna saman frábærum árangri liðsins í keppninni í ár. Á fáum stöðum hefur kórónuveiran herjað meira á en á heimaslóðum Atalanta liðsins.

Ítalska félagið Atalanta tryggði sér sæti í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gærkvöldi en liðið er fyrstu nýliðinn sem nær að komast svo langt í Meistaradeildinni síðan að lið Leicester City fór einnig í átta liða úrslitin tímabilið 2016-17.

Atalanta liðið kemur frá Bergamo eða þeim hluta Ítalíu þar sem kórónuveiran hefur haft mest áhrif. Ítalir lokuðu fyrst þessum hluta landsins þegar útbreiðsla kórónuveirunnar var orðin svo mikil þar.

Ítalir þurftu seinna að loka öllu landinu og engir stuðningsmenn Atalanta flugu með til Spánar. Það voru heldur engir áhorfendur á Mestalla vellinum í gærkvöldi. Stuðningsmenn Valencia liðsins söfnuðust reyndar fyrir utan völlinn og létu heyra í sér allan tímann.

Atalanta vann leikinn í gær 4-3 og þar með 8-4 samanlagt. Atalanta liðið hefur nú unnið fjóra síðustu leiki sína í Meistaradeildinni og skorað í þeim þrettán mörk.





„Við erum mjög ánægðir með fyrir hvað þessi úrslit standa,“ sagði knattsyrnustjórinn Gian Piero Gasperini eftir sigurinn í gær.

„Við munum hafa risapartý í júní til að fagna þessum árangri og sigri okkar á hættunni sem við munum líka leggja að velli,“ sagði Gasperini og vísaði þá í baráttuna við kórónuveiruna.

„Við vitum að það voru margir að fylgjast með okkur heima sem gátu ekki farið út á götu til að fagna. Þetta var fyrir fólkið í Bergamo. Við höfum líka fengið margar kveðjur frá yfirmanninum á sjúkrahúsinu í Bergamo,“ sagði Gian Piero Gasperini.

„Þetta er eitthvað svo mjög sérstakt fyrir okkur. Þetta er mjög óvenjulegur tími fyrir Bergamo, Lombardy héraðið og Ítalíu alla en sem félag þá getum við aðeins þakkað okkar leikmönnum og þjálfurum fyrir að gefa okkur tvo klukkutíma af gleði,“ sagði Luca Percassi, framkvæmdastjóri félagsins.

„Við gerum okkur grein fyrir mikilvægi fótboltans á erfiðum stundum eins og við stöndum nú frammi fyrir,“ sagði Luca Percassi.

Félagið biðlaði síðan til allra stuðningsmanna sinna að af heilsuástæðum myndu þeir ekki fagna þessum árangri út á götum Bergamo.

Hér fyrir neðan má sjá mörkin úr leiknum í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×