Fótbolti

Sjáið þrennuna hjá Sveindísi á móti Svisslendingum í gær

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sveindís Jane Jónsdóttir.
Sveindís Jane Jónsdóttir. Mynd/Knattspyrnusamband Íslands

Stelpurnar í nítján ára fótboltalandsliðinu unnu flottan 4-1 sigur á Sviss í æfingaleik á La Manga í gær og skoraði Keflvíkingurinn Sveindís Jane Jónsdóttir þrennu í leiknum.

Sveindís Jane Jónsdóttir er nýkomin til Breiðabliks en hún sló í gegn með Keflavíkurliðinu í Pepsi Max deild kvenna í fyrrasumar.

Knattspyrnusamband Íslands hefur nú klippt saman myndband með mörkum íslenska liðsins í leiknum.

Auk þrennu Sveindísar Jane Jónsdóttur skoraði Barbára Sól Gísladóttir eitt mark.

Sveindís Jane Jónsdóttir skoraði fyrsta markið á 9. mínútu eftir mistök markvarðar og Barbára Sól Gísladóttir kom Íslandi aftur yfir með skalla á 23. mínútu eftir hornspyrnu Áslaugar Mundu Gunnlaugsdóttur. Annað mark Sveindísar kom síðan eftir undirbúning frá fyrirliðanum Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur á 41. mínútu.

Sveindís Jane innsiglaði síðan þrennuna á 50. mínútu þegar hún fylgdi á eftir skoti Ídu Marín Hermannsdóttur.

Íslenska liðið mætir næst Ítalíu á laugardaginn og hefst sá leikur klukkan 13.00 að íslenskum tíma.

Það má sjá öll fjögur mörkin hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×