Innlent

Rafræn kennsla lögð til grundvallar í HÍ

Sylvía Hall skrifar
Rafræn kennsla verður að stórum hluta við Háskóla Íslands en nemendur munu fá aðgang að byggingum skólans.
Rafræn kennsla verður að stórum hluta við Háskóla Íslands en nemendur munu fá aðgang að byggingum skólans. Vísir/Vilhelm

Nemendum og starfsfólki Háskóla Íslands hefur verið tilkynnt að rafræn kennsla verði lögð til grundvallar á komandi önn, þó með möguleika á staðkennslu ef aðstæður leyfa. Nýnemar verða þar í forgangi að því gefnu að slík kennsla uppfylli tilmæli sóttvarnalæknis og yfirvalda hverju sinni.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Jóni Atla Benediktssyni rektor í gær. Þar útlistar hann helstu reglur varðandi fyrirkomulag kennslunnar á komandi önn sem taka mið af leiðbeiningum frá menntamálayfirvöldum.

Höfuðáhersla er lögð á einstaklingsbundnar sóttvarnir og brýnt fyrir nemendum og starfsfólki að huga að handþvotti og nándarmörkum. Fólk sem á að vera í sóttkví eða einangrun skal ekki fara inn á svæði Háskólans og sama gildir um þá sem finna fyrir einkennum Covid-19.

Grímuskylda þar sem ekki er hægt að viðhalda fjarlægð 

Nándarmörk innan veggja háskólans eru minnst einn metri í samræmi við tilmæli sóttvarnalæknis. Nemendum og starfsfólki ber að tryggja þau mörk í öllu starfi skólans en ekki mega fleiri en hundrað einstaklingar koma saman í hverju rými.

Við kennslu þar sem ekki er hægt að framfylgja nándarreglunni skal nota andlitsgrímu sem hylur munn og nef. Þetta á við um verklega kennslu, listkennslu og klínískt nám. Þeir nemendur sem stunda klínískt nám á heilbrigðisstofnunum þurfa að framfylgja strangari reglum.

Háskóli Íslands mun tryggja að sem minnst blöndun verði á milli svokallaðra smithólfa innan skólans. Vísir/Vilhelm

Í byggingum þar sem fleiri en hundrað verða hverju sinni verða svokölluð hólf og skal tryggt eftir fremsta megni að enginn samgangur sé á milli hólfa. Er þetta gert til þess að auðvelda smitrakningu komi smit upp innan skólans.

„Hvert hólf verður aðgreint og tryggt eftir fremsta megni að það hafi eigin inngang og útgang. Salerni verða aðgreind fyrir hvert hólf. Þar sem aðstæður leyfa ekki slíka aðgreiningu er heimilt að nýta ganga milli aðgreindra hólfa til að nemendur komist inn og út úr kennslustofum og á salerni. Í slíkum tilvikum verður auglýst rækilega að umræddir gangar séu einungis ferðarými og megi ekki nýta til annars.“

Færri viðburðir 

Gestagangur í Háskóla Íslands verður takmarkaður og verður brýnt fyrir gestum að huga að einstaklingsbundnum sóttvörnum og virða þær reglur sem gilda um þær. Þá er mælst til þess að viðburðir verði ekki á vettvangi skólans.

„Á meðan á samkomubanni stendur mun Háskólinn takmarka viðburði sem starfsfólk sækir þvert á fræðasvið eða miðlægt,“ segir í leiðbeiningunum.

Fari svo að samkomur verði haldnar innan veggja skólans verða allir að virða fjöldatakmarkanir og tryggja að minnst eins metra fjarlægð sé á milli gesta.

„Ég minni á að núverandi ástand er tímabundið og með sameiginlegu átaki tryggjum við öflugt skólastarf og stöndum vörð um gæði náms og kennslu við Háskóla Íslands,“ skrifar Jón Atli að lokum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×