Andri Fannar spilaði sinn fyrsta leik fyrir Bologna í dramatísku jafntefli Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. febrúar 2020 15:58 Andri Fannar hefur leikið á fjórða tug leikja fyrir yngri landslið Íslands. vísir/getty Andri Fannar Baldursson lék sinn fyrsta leik fyrir aðallið Bologna þegar liðið tapaði fyrir Udinese í ítölsku úrvalsdeildinni á heimavelli í dag. Á 59. mínútu skipti Sinisa Mihajlovic, knattspyrnustjóri Bologna, Andra inn á fyrir Danann Andreas Skov Olsen. Þá var staðan 1-0. Stefano Okaka kom Udinese yfir á 33. mínútu. | PRIMO CAMBIO: Esce Skov Olsen Entra Baldursson#BolognaUdinese | 0-1 |#WeAreOne— Bologna Fc 1909 (@BfcOfficialPage) February 22, 2020 Andri Fannar Baldursson (2002) with debut for @BolognaFC1909en pic.twitter.com/WOJu9rOfF8— Magnus Agnar Magnusson (@totalfl) February 22, 2020 Þegar fjórar mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma jafnaði Argentínumaðurinn þrautreyndi, Rodrigo Palacio, metin fyrir Bologna. Andri, sem er 18 ára, hefur leikið með unglingaliði Bologna í vetur en fékk sitt fyrsta tækifæri með aðalliðinu í dag. Hann var einnig í leikmannahópi aðalliðsins í 2-1 sigri á Sampdoria í október á síðasta ári. Hann gekk í raðir Bologna frá Breiðabliki í byrjun síðasta árs. Fyrst var Andri lánaður til ítalska liðsins en það keypti hann svo í ágúst. Andri lék einn leik með Breiðabliki í efstu deild sumarið 2018. Hann hefur leikið 34 leiki og skorað fjögur mörk fyrir yngri landslið Íslands. Bologna er í 10. sæti ítölsku deildarinnar með 34 stig eftir 25 leiki. Ítalski boltinn
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti