Lazio taplaust í deildinni í fimm mánuði Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. febrúar 2020 13:44 Ciro Immobile skoraði sitt 27. deildarmark á tímabilinu gegn Genoa. vísir/getty Lazio vann sinn þriðja leik í röð í ítölsku úrvalsdeildinni þegar liðið lagði Genoa að velli, 2-3, í dag. Lazio er enn í 2. sæti deildarinnar, nú með 59 stig, einu stigi á eftir toppliði Juventus. Lazio hefur ekki tapað deildarleik í fimm mánuði, eða síðan 25. september á síðasta ári. Adam Marusic kom Lazio yfir eftir aðeins tveggja mínútna leik. Fleiri urðu mörkin ekki í fyrri hálfleik. Á 51. mínútu kom Ciro Immobile gestunum í 0-2. Hann er markahæstur í ítölsku deildinni með 27 mörk. Sex mínútum síðar minnkaði Francesco Cassata muninn fyrir Genoa en Danilo Cataldi kom Lazio aftur tveimur mörkum yfir á 71. mínútu. Domenico Criscito minnkaði muninn í 2-3 á lokamínútunni en nær komust heimamenn ekki. Genoa er í 18. sæti deildarinnar með 22 stig, einu stigi frá öruggu sæti. Ítalski boltinn
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti