Innlent

„Gæti verið verri staður til að vera fastur á“

Eiður Þór Árnason skrifar
Reiknað er með því að fólkið verði í sóttkví í tvær vikur.
Reiknað er með því að fólkið verði í sóttkví í tvær vikur. Aðsend - Vísir/AP

Sigvaldi Kaldalóns, fararstjóri á Tenerife, segir að líðan Íslendinganna sem séu í sóttkví sé góð og að fólk sé skilningsríkt. Unnið er að því að rannsaka alla gesti hótelsins.

Sjö Íslendingar eru á meðal þeirra gesta sem eru í sóttkví á H10 Costa Adeje Palace-hótelinu á Tenerife eftir að ítalskur læknir sem dvaldi þar greindist með veiruna.

„Þau eru lokuð á hótelinu en hafa aðgang að öllum garðinum og geta raunar spásserað þar eins og þau vilja. Svo fara þau öll í blóðprufur og þær eru allar sendar til Madrídar. Þá er fólk bara í þessum sundlaugagarði og á þessu hóteli, sem er reyndar alveg geggjað hótel og frábær garður.“

Leggja áherslu á að fólk sé rólegt

Sigvaldi, sem er eflaust betur þekktur sem Svali, segir að öll tilmæli frá yfirvöldum miði að því að fólk haldi ró sinni og sé ekki að hafa óþarfa áhyggjur, þó ástandið sé vissulega alvarlegt.

„Fólkið hérna er mjög rólegt. Ég held að það finni líka bara hvernig allt er hérna, það eru engin læti, það er ekkert panick, það er enginn úti á götum með grímur eða neitt svoleiðis.“

„Það er ekkert við þessu að gera. Þetta er bara svona og gæti verið verri staður til að vera fastur á. Þetta er mikið betra en helvítis skemmtiferðaskipið, þar sem fólk húkir inn í káetu. Þarna ertu með sundlaugagarðinn og þú ert með barinn og hlaðborðið og allt draslið.“

Svali segir það koma sér smá á óvart hversu lítið hefur í raun verið fjallað um málið í spænskum miðlum. Mikill munur sé á magni umfjöllunar um málið þar úti og hér heima.

„Það er ekkert rosa mikið af fréttum af þessu.“

Á ekki að trufla karnivalvikuna

Að hans sögn eru allir hvattir til þess að fylgja almennum tilmælum frá heilbrigðisyfirvöldum, sem svipi mikið til þeirra sem hafi verið gefin út hér á landi.

„Tilmælin eru meðal annars þau að þvo þér um hendurnar, nota sprittið, ekki kyssa þegar þú heilsar og forðast fólk sem er að hnerra.“

Heimamenn séu þó beðnir um að láta fárið ekki trufla viðburðahald sitt en svokölluð karnivalvika stendur nú yfir á eyjunni.


Tengdar fréttir

Smituðum fjölgar í Evrópu og víðar

Verið er að grípa til umfangsmikilla aðgerða vegna Covid-19, sjúkdómsins sem nýja kórónuveiran veldur, víða um heim því á sama tíma og dregið hefur úr fjölgun smitaðra í Kína, fjölgar smituðum hratt annarsstaðar í heiminum.

Sjö Ís­lendingar í sótt­kví á Tenerife

Sjö Íslendingar eru í sóttkví á H10 Costa Adeje Palace-hótelinu á Tenerife, samkvæmt upplýsingum frá Þráni Vigfússyni, framkvæmdastjóra ferðaskrifstofunnar Vita.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×