Skoðun

Heil­brigð ung­menni sem geta tekist á við á­skoranir 21. aldarinnar

Sigríður Hulda Jónsdóttir skrifar

Auglýst hefur verið eftir umsóknum í þróunarsjóð grunnskóla í Garðabæ sjötta árið í röð. Markmið sjóðsins er að stuðla að öflugu og framsæknu skólastarfi  í Garðabæ og gefa fagfólki tækifæri til þess að sjá góðar hugmyndir verða að veruleika í starfi með börnum og ungmennum. Megináhersla við úthlutun styrkja að þessu sinni er á vellíðan, læsi og framsækna kennsluhætti.

Vellíðan grundvöllur lífsgæða og árangurs

Aðaláhersla við úthlutun úr sjóðnum nú er á vellíðan sem grundvöll lífsgæða og árangurs. Rannsóknir sýna að þetta er þáttur sem vert er að taka föstum tökum þar sem streitu-, álags- og kvíðamein hafa í auknum mæli neikvæð áhrif á lífsgæði og þar með árangur einstaklinga í nútíma samfélagi. Áherslan felst í að þjálfa færni nemenda til að takast á við áskoranir nútímasamfélags svo sem áreiti, hraða, streitu og kvíða með viðurkenndum aðferðum sem styðja við vellíðan og árangur. Er þar meðal annars átt við hugleiðslu, íhugun, sjálfseflingu, seigluþjálfun og heilsueflandi lífsstíl. Rannsóknir sýna að einstaklingar sem búa yfir seiglu og hugarró hafa meira þol til að mæta áreiti, hraða og streitu og eru jafnvel hæfari til að skapa nýjungar og leysa flókin mál. Þetta er þáttur sem vert er að huga að og afar mikilvægt er að þegar nemendur ljúka skyldunámi séu þeir sterkir og heilbirgðir einstaklingar á sál og líkama þannig að þeir geti notið sín í frekara námi og störfum, náð árangri og tekist á við áskoranir nútímasamfélags.

Læsi

Önnur aðaláhersla við úthlutun úr sjóðnum nú lýtur að því að tryggja læsi skólabarna. Þar er horft til að þess að auðga enn frekar fjölbreyttar aðferðir til að efla læsi, lesskilning, yndislestur og orðaforða. Sérstök áhersla er á nemendur sem standa höllum fæti miðað við jafnaldra t.d. með snemmtækri íhlutun, samvinnu við foreldra og nýtingu mælikvarða á sviðinu.

Framsæknir kennsluhættir

Í síbreytilegu samfélagi þurfa kennsluhættir að taka mið af tækniþróun og þroska þá færni nemenda sem reynir á að grunnskólanámi loknu. Tækni- og teymiskennsla er mikilvæg auk þess sem samvinna nemenda eflir félags- og samskiptafærni þeirra. Kennsluhættir sem taka mið af þessum þáttum undirbúa nemendur undir framtíðina. Framsæknustu háskólar heims þjálfa margir hverjir nemendur sína sérstaklega í hóp- og samvinnu þar sem mikið reynir á þá færni í atvinnulífinu. Nám sem styður við trú á eigin getu, frumkvæði og sköpunarkraft skapar sterka einstaklinga.

Úthlutað hefur verið 125 milljónum til yfir 100 verkefna innan grunnskóla Garðabæjar

Þróunarsjóður grunnskóla Garðabæjar var stofnaður árið 2015 og árlega hefur verið úthlutað 25 milljónum til þróunarverkefna eða samtals 125 milljónum síðast liðin fimm ár. Má þar nefna  verkefni sem snúa að læsi, fjölbreyttum kennsluháttum, upplýsingatækni, vendikennslu, fagmennsku og innra mati á gæðum skólastarfs,  vellíðan, félags- og samskiptahæfni nemenda, tómstundastarfi og starfsemi félagsmiðstöðva.

Áhersluþættir í takt við áskoranir og styrkleika

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar skilgreinir áherslur Þróunarsjóðs við úthlutun hverju  sinni. Þá er m.a. horft til áskorana og styrkleika í skólasamfélaginu og vísbendinga rannsóknarniðurstaðna á líðan og stöðu ungmenna. Í Garðabæ er val um grunnskóla og við úthlutun er lögð áhersla á að verkefnin geti styrkt sérstöðu hvers skóla. Við afgreiðslu er einnig horft  til  tengingar við aðalnámsskrá, fræðasamfélagið og samstarfs milli skóla og skólastiga.

Aukið fjármagn til sjóðsins

Við fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2020 var ákveðið að bæta 3 milljónum við sjóðinn. Frá upphafi hefur verið úthlutað 25 milljónum árlega til þróunarverkefna grunnskólanna, en nú í fyrsta skipti verður úthlutað 28 milljónum. Við þessa ákvörðun var horft til þess að íbúum og skólabörnum fer fjölgandi í bænum. Urriðaholtsskóli tók nýlega til starfa sem grunnskóli í bænum, en í Garðabæ eru sex grunnskólar á vegum bæjarins auk tveggja sjálfstætt starfandi grunnskóla og allir þessir átta skólar geta sótt um styrki í Þróunarsjóð grunnskóla Garðabæjar. Þá liggur fyrir  að þróunarverkefnin hafa nýst mjög vel í skólastarfinu og  telja starfsmenn skólanna og stjórnendur þau afar mikilvægan þátt í þróun og framsækni skólastarfsins.

Höfundur er formaður skólanefndar grunnskóla Garðabæjar.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×