Skoðun

Ef ófaglærðir starfsmenn í leikskólum fengju borgað eins og barnapíur

Ingvi Hrannar Ómarsson skrifar

Engin starfsgrein skilar jafn miklu til baka en þeir sem mennta börnin okkar enda er menntun það mikilvægasta sem landið getur fjárfest í. Lilja Alfreðdóttir benti t.a.m. á að „hver króna sem stjórn­völd greiddu til náms á há­skóla­stigi skilaði sér átt­falt til baka.”

Þegar er litið er til menntunar yngri barna skilar hún jafnvel meiru. Samkvæmt rannsóknum menntamálayfirvalda í Pensylvaníu-ríki í USA skilar góð menntun barna í leikskóla (pre-kindergarten) sér sautjánfalt (17x) til baka til samfélagsins.

Góð menntun barna í leikskóla skilar sér sautjánfalt (17x) til baka til samfélagsins.

Það virðist sveitarfélög landsins litlu skipta hvort leikskólakennarar eða ófaglært starfsfólk starfi í leikskólum, enda brjóta sveitarfélög ítrekað lög með því að uppfylla ekki lágmarkshlutfall stöðugilda við kennslu, umönnun og upp­eldi barna í hverjum leik­skóla. Hlut­fall mennt­aðra leik­skóla­kenn­ara í Reykjavíkurborg er um 25% og er langt frá því að ná því 67% lágmarki sem lög gera ráð fyrir.

Það er ekki af því að svona fáir hafa menntað sig í uppeldis-og kennslufræðum heldur alltof fáir sem kjósa að starfa við menntun og umönnun barna þegar þau geta fengið hærri laun í nánast hvaða starfi sem er. Sveitarfélög greiða alltof lág laun og það er að kosta okkur stórfé!

Það er ekki skortur á fólki sem hefur menntað sig við kennslu heldur skortur á menntuðu fólki sem kýs að starfa við það. Það er bleiki fíllinn!

Fyrir vikið eru fjölmargir ófaglærðir sem starfa í leikskólum. Þetta fólk er á alltof lágum launum, sem veldur því að starfsmannavelta í leikskólum er alltof mikil því ófaglært starfsfólk getur skipt um starf um leið og það losnar í ræstingum (15% hærri laun), við afgreiðslu í dagvöruverslun (18% hærri laun), eða á glugga- og bílaþvottastöð (32,5% hærri laun) miðað við launarannsókn Hagstofu Íslands árið 2018. Það sama á við um leikskólakennara sem eru einnig á alltof lágum launum.

Ég held að flestir séu sammála um að laun í leikskólum eru of lág. Ef þú ert ekki sammála því skaltu prófa að sækja um. Sveitarfélög sem brjóta lög um hlut­fall mennt­aðra leik­skóla­kenn­ara ættu að mínu mati að sæta dagsektum.

Til að setja laun ófaglærðra í leikskólum í samhengi gerði ég óformlega rannsókn á launum 15 ára unglinga sem passa börn. Svo virðist sem laun barnapíu séu um 750-1000 krónur á tímann fyrir hvert barn. Segjum að ófaglært starfsfólk leikskólanna fengi sömu laun. Þá liti launaseðillinn fyrir mánuðinn svona út:

Þetta er að sjálfsögðu ósanngjarn samanburður því starf ófaglærðra starfsmanna á leikskólum er miklu faglegra en starf barnapíu sem setur á bíómynd og fer svo í símann á meðan beðið er eftir pizzu.

Í leikskólum er unnið gríðarlega mikilvægt starf í uppeldi og umönnun. Ólíkt barnapössun er starf á leikskóla ekki pössun og leikskólar eru ekki geymsla heldur líklega einhver mikilvægasti tími í þroska hvers barns. Það á ekki einu sinni að bera þetta saman. Fáránleikinn í þessu öllu saman er því að það þurfi aðeins laun 15 ára barnapíu til að þrefalda laun ófaglærðra starfsmanna leikskóla.

En ef ófaglært starfsfólk fengi greitt eins og barnapíur, hvað ætti þá faglært starfsfólk með 5 ára háskólanám í uppeldi og umönnun barna að fá í laun? 2500 krónur á barn (sem myndi gera 2.240.000 á mánuði).

Af hverju ekki? Miðað við rannsóknir fengjum við það 17x til baka.

Höfundur er kennari, frumkvöðull, ráðgjafi og nemandi við Stanford-háskóla.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×