Stofnandi Uniconta aðalfyrirlesari UTmessunnar Uniconta kynnir 7. febrúar 2020 09:15 Erik Damgaard hugbúnaðarverkfræðingur og stofnandi Uniconta hefur staðið í fremstu röð í þróun bókhaldskerfa í meira en þrjá áratugi. Hann er aðalfyrirlesari UTmessunar í Hörpu. Uniconta
Danski hugbúnaðarverkfræðingurinn Erik Damgaard er einn aðalfyrirlesara á UTmessunni sem fram fer í Hörpu um helgina, stærsta viðburði ársins í tölvugeiranum á Íslandi. Erik er stórt nafn í alþjóðlega hugbúnaðarheiminum. Hann hefur staðið í fremstu röð í þróun bókhaldskerfa í meira en þrjá áratugi og meðal annars keypti risinn Microsoft hugbúnaðarlausnir árið 2001 og kerfi Eriks eru enn flaggskip Micorsoft í viðskiptalausnum. Nýjasta bókhaldslausnin úr smiðju Eriks er Uniconta, aðgengileg og einföld í notkun og má kalla fulltrúa nýrra tíma í bókhaldi. Erik segir galdurinn við að standa í framlínunni svo áratugum skipti í bransanum felast í að fylgjast með og koma auga á hvar tækifæri í nýsköpun liggja á hverjum tíma. „Ég hannaði mitt fyrsta bókhaldsforrit 1984. Ég útskrifaðist úr háskóla um vorið og um haustið var forritið klárt. Við bróðir minn kynntum það á ráðstefnu í Danmörku strax um haustið og komum því á markað. Ég hef unnið við hugbúnaðargeirann allar götur síðan og þróað mörg ólík kerfi sem öll eru í fullri notkun enn þann dag í dag,“ segir Erik og segist oft heyra að hann sé kallaður „The big old man of the business.“ Enda man hann tímana tvenna. „Þegar ég var að byrja ´84 voru tölvurnar 8 bæti, sú fyrsta ekki einu sinni MS DOS heldur CP/M sem var minni tölva með einungis 64 kb RAM. Svo skrifaði ég fyrir IBM tölvurnar síðar sem höfðu stærra minni. Svo kom Windows og svo kom internetið, og með hverri nýrri bylgju skrifaði ég stærri forrit og réð fleira fólk,“ segir Erik. Hugmyndin að Uniconta verður til upp úr árinu 2010 þegar hann sá ákveðna þróun verða í upplýsingatæknigeiranum sem bókhaldslausnir voru ekki að fylgja. Framtíðin liggur í skýinu„Ég tók eftir því að fleiri og fleiri fyrirtæki voru að færa sig yfir í skýjalausnir og þar voru að verða miklar tækniframfarir. Enginn virtist þó kveikja á perunni í bókhaldsheiminum. Reyndar voru nokkur smærri bókhaldskerfi á netinu sem hægt var að skrá sig inn á en ég sá þarna tækifæri til að hanna nýtt kerfi frá grunni og fór að vinna með hugbúnað í skýinu,“ útskýrir Erik. „Árið 2014 var Uniconta sett á markað, alhliða bókhaldslausn fyrir stærri fyrirtæki sem þurfa meira en bara fjárhagsbókhald, fyrirtæki sem þurfa til dæmis birgðabókhald, pantanabækur og þrjá notendur eða fleiri.“Verða himinlifandi með UnicontaErik segir Uniconta einfalda alla hluti svo um munar og færa fyrirtækin í einu stökki inn í nútímann. „Öll stóru bókhaldskerfin sem notuð eru í dag voru hönnuð undir lok síðustu aldar. Þess vegna sá ég tækifæri. Það má búa til svo margt nýtt. Þeir sem skipta úr gömlu kerfi yfir í Uniconta verða einfaldlega himinlifandi. Allt verður einfaldara. Ekki þarf að hugsa um netþjón eða láta uppfæra hugbúnað. Við Uniconta er hægt að tengja nýja notendur á einfaldan hátt og láta allar upplýsingar birtast sem þarf, sækja færslur beint frá banka, vista símreikninga, rafmagnsreikninga og svo framvegis sem viðhengi við færslur,“ útskýrir Erik. „Gamli heimurinn byggðist á pappír og upp um alla veggi og ofan í öllum skúffum á skrifstofunni voru möppur fullar af pappír. Í Uniconta er allt skannað inn og geymt á rafrænu formi. Hægt er að skanna inn gegnum app og skrá sig inn hvar og hvenær sem er. Bókhaldarinn getur haft aðgang að gögnunum þínum og skráir sig bara inn frá eigin skrifstofu. Margir átta sig ekki á þessu og keyra ennþá gamla hugbúnaðinn en þegar þeir uppgötva Uniconta , uppgötva þeir nýjan heim,“ segir Erik en á UTmessunni verða fulltrúar Uniconta á Íslandi sem kynna lausnina vel fyrir gestum. Erik segir hugbúnaðarheiminn spennandi starfsvettvang og ungt tæknimenntað fólk eigi mikla möguleika á atvinnu um leið og það lýkur námi. Sem fyrr segir er Erik einn af aðalfyrirlesurum ráðstefnunnar. Hann mun fjalla um kosti Skýjalausna og hvernig heimurinn er að færast yfir í Skýið. Áhersla verður lögð á íslensk tæknifyrirtæki á UTmessunni í ár og segir Erik Ísland standa mjög framarlega í allri tækni, líkt og Danmörk. Það einkenni þessi litlu lönd að grípa nýjungar á lofti og aðlaga sig hratt að breyttum aðstæðum og þróun. „Við stöndum til dæmis miklu framar en stórar þjóðir eins og Þjóðverjar, sem virðast eiga miklu erfiðara með að tileinka sér breytingar og prófa eitthvað nýtt. Á Íslandi og í Danmörku vilja fyrirtæki halda markaðsforskoti og fjárfesta í upplýsingatækni. Ungt tæknimenntað fólk hefur talsverða möguleika á að fá vinnu strax og það lýkur námi. Hugbúnaðarheimurinn er afar stór og spennandi heimur að starfa í og tækifærin mörg. Sonur minn fetaði til dæmis í mín spor og lærði forritun, ég vildi ráða hann strax í vinnu en hann neitaði, gat farið annað,“ segir Erik sposkur. Nánar má kynna sér Uniconta á uniconta.is og á UTmessunni í Hörpu um helgina.Þessi kynning er unnin í samstarfi við Uniconta.
Tækni Mest lesið Einn stærsti vinnustaður Akraness gjaldþrota Viðskipti innlent Mikið áfall fyrir íslenskan sjávarútveg Viðskipti innlent Ósáttur með sætin og fær milljón endurgreidda Neytendur Syndis ræður reyndan tölvuþrjót Viðskipti innlent Gjaldþrot Jötunn véla upp á 1,7 milljarða Viðskipti innlent Gera margvíslegar athugasemdir við starfshætti Kviku Viðskipti innlent Reitir hrista upp í skipuritinu Viðskipti innlent Matvöruverslun rís á nýjum reit við Keflavíkurflugvöll Viðskipti innlent Stærsti Hiab krani í heimi á sumarsýningu Veltis Samstarf Ýmsar ástæður fyrir lokun en launin stóra vandamálið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Einn glæsilegasti golfvöllur landsins í Kiðjabergi Stærsti Hiab krani í heimi á sumarsýningu Veltis Áhersla á öryggi viðskiptavina Eftirvagnar breyta aksturseigileikum bílsins Tæknin tekur yfir leigubílamarkaðinn Hægt að tilkynna holur á vegum á vegbót.is – FÍB er alltaf á vaktinni Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Nýr Peugeot E-3008 rafbíll frumsýndur í Brimborg Bílaumboðið Una skrifar undir samning við XPENG Skelltu þér í sólina í sumar Nýjungar á Hótel Grímsborgum Ánægðari börn, foreldrar og starfsfólk og öflugt fagstarf Brimborg lækkar verð á Polestar Iðnaðarmaður ársins 2024 er fundinn Ofursmart heilsárshús Glæsilegar íbúðir með frábæru útsýni Ný leið fyrir fyrirtæki til að rafvæða bílaflotann Toyota fagnar sumrinu á laugardag Þú þarft ekki að óttast rigninguna Eitt glæsilegasta byggingarsvæði höfuðborgarsvæðisins Sjá meira