Innlent

Korna­barn greindist með kórónu­veiru­smit á Austur­landi

Sylvía Hall skrifar
Átta greindust með veiruna á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans í gær.
Átta greindust með veiruna á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans í gær. Vísir/Vilhelm

Kornabarn greindist með kórónuveirusmit á Austurlandi í gær og er nú í einangrun. Barnið, sem er ekki búsett á Austurlandi, er eini einstaklingurinn í yngsta aldurshópnum með virkt smit.

Þetta staðfestir Jóhann K. Jóhannsson, samskiptastjóri almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, í samtali við Vísi. Átta innanlandssmit greindust hér á landi í gær samkvæmt nýjustu tölum.

Fjögur börn 12 ára og yngri eru nú í einangrun með kórónuveirusmit; eitt kornabarn yngra en eins árs, eitt barn í aldurshópnum 1-5 ára og tvö börn á aldrinum 6-12 ára.

Sjö eru nú í einangrun á Austurlandi og 26 í sóttkví. Langflestir eru þó í einangrun á höfuðborgarsvæðinu eða alls 82.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×