Kviknaði í rusli við hús Kvikmyndaskólans Kjartan Kjartansson skrifar 23. janúar 2020 18:17 Eldurinn kviknaði í spýtnabraki og komst í glugga dælustöðvar í kjallara hússins. Vísir/Sigurjón
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu sinnir nú útkalli eftir að tilkynnt var um eld á Grensásvegi 1 í Reykjavík. Eldur kviknaði í rusli fyrir utan húsið og lagði töluverðan reyk af honum. Slökkviliðsmenn vinna nú að því að reykræsta húsið. Kvikmyndaskóli Íslands hefur verið til húsa á Grensásvegi 1 en samkvæmt upplýsingum slökkviliðsins er engin starfsemi í því nú. Eldurinn kviknaði í rusli utandyra en var slökktur fljótt. Slökkviliðsmenn brutu sér leið inn í húsið til að ræsta úr reykinn. Helgi Túliníus, varðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 að eldurinn hefði kviknað í spýtnabraki við dælustöð í kjallara hússins. Lögreglumenn hafi í fyrstu reynt að slökkva í með slökkvitæki en slökkviliðsmenn hafi endanlega slökkt í eldinum. Í ljós hafi komið að eldurinn hafi læst sig í loftútblástur frá dælustöðinni. Slökkviliðsmenn hafi því farið inn í húsið til að kanna með skemmdir og reykræsta. Helgi sagði að ekki virtist hafa orðið mikið tjón og að húsið hafi verið mannlaust. Rannsakað verði hvernig eldurinn kviknaði. Dælustöð er í kjallara hússins. Á efri hæðum hefur Kvikmyndaskólinn verið til húsa en engin starfsemi er sögð um þessar mundir. Húsið var mannlaust þegar eldurinn kom upp.Vísir/SIgurjón Fréttin hefur verið uppfærð.
Reykjavík Slökkvilið Mest lesið Hafþór keppir í Rússlandi: „Auðvitað veldur þessi ákvörðun ákveðnum vonbrigðum“ Innlent Morðhótunum í garð kvenna fari fjölgandi Innlent Rafmennt í samstarf og kaupir eignir þrotabúsins Innlent Handtekinn grunaður um vasaþjófnað í miðborginni Innlent Engar reglur á Íslandi um hve mörg börn sæðisgjafar megi eignast Innlent Úkraína og Bandaríkin nálgast samkomulag Erlent Svona gæti veðrið litið út á sumardeginum fyrsta Veður „Stórtækir íbúðareigendur“ eiga 20 prósent íbúða í borginni Innlent Tveir létust í skotárás á háskóla í Flórída Erlent Kartöflugeymsla orðin að menningarhúsi Selfyssinga Innlent Fleiri fréttir „Stórtækir íbúðareigendur“ eiga 20 prósent íbúða í borginni Handtekinn grunaður um vasaþjófnað í miðborginni Engar reglur á Íslandi um hve mörg börn sæðisgjafar megi eignast Morðhótunum í garð kvenna fari fjölgandi Rafmennt í samstarf og kaupir eignir þrotabúsins Kartöflugeymsla orðin að menningarhúsi Selfyssinga Hafa áhyggjur af því að sýn Veitna á Heiðmörk sé of þröng Skortur á reglum um sæðisgjafir og menningarmiðstöð í kartöflugeymslu Háværar framkvæmdir stöðvaðar Hafþór keppir í Rússlandi: „Auðvitað veldur þessi ákvörðun ákveðnum vonbrigðum“ Rannsaka ólöglegt fiskeldi Áformin dragi verulega úr möguleikum til útivistar Geti haft í för með sér „ónæði, mengun og álag á fráveitu“ Ofbeldi í nánum samböndum og mótmæli á Tenerife Einhleypir karlmenn standa verst Misskilnings gætt um breytingar á lögum um innritun í framhaldsskóla Andstaða forstjóra Flugleiða við Cargolux réð því að hluturinn fór Bað lögreglu um að bjarga kettinum úr klóm nágrannans Vantar sjálfboðaliða til að laga 500 hjól handa efnaminni fjölskyldum „Umhverfi sem gerir eðlilegt og lögmætt flug að forréttindum stóru rekstraraðilanna“ Nafn mannsins sem lést í Garðabæ Af Alþingi til Fjallabyggðar „Vísbendingar um að fjárhagur sé að vænkast hjá borginni“ „Þeir voru fullir af hatri á meðan þeir lömdu mig“ Engin mygla í 200 húsum byggingameistara á Selfossi „Með allra besta móti miðað við árstíma“ Jónas Ingimundarson er látinn Búið að loka hringveginum vegna ófærðar Sex hópnauðganir til rannsóknar og lengri opnunartími sundlauga Von á fallegum, litríkum og kvikum norðurljósum í kvöld Sjá meira