Kalt heimskautaloft flæðir yfir landið Atli Ísleifsson skrifar 2. janúar 2020 06:45 Það gengur á ýmsu í veðrinu næstu daga. vísir/vilhelm
Kalt heimskautaloft flæðir í dag yfir landið og það frystir. Éljabakkar sækja að landinu úr norðri og vestri og geta akstursskilyrði orðið erfið í éljunum. Suðausturland og Austfirðir sleppa að miklu leyti við úrkomuna í dag. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Er spáð norðan- og norðvestan 10 til 18 metrar á sekúndu með morgninum. Él, einkum norðan- og vestanlands. Fer veður kólnandi með frosti 3 til 10 stigum seinnipartinn. „Á morgun (föstudag) er útlit fyrir hvassa norðvestanátt með snjókomu á Norður- og Austurlandi og gæti hríðin orðið nokkuð dimm á þeim slóðum þegar verst lætur. Sunnan heiða er útlit fyrir bjartan dag en kaldan. Vestasti hluti landsins (þar með talið höfuðborgarsvæðið) sleppur einnig við vindinn að þessu sinni. Á föstudagskvöld hefur veðrið gengið niður og það herðir á frostinu, þá gætu tveggja stafa frosttölur verið að mælast í öllum landshlutum. En þau rólegheit standa ekki lengi því á laugardag er útlit fyrir að gangi í suðaustan storm með hlýnandi veðri. Úrkoman sem fylgir verður líklega snjókoma til að byrja með, en færir sig síðan yfir í slyddu eða rigningu. Það gengur sem sagt á ýmsu næstu daga og veðrið getur haft áhrif á ferðalög, sérílagi ef förinni er heitið milli landshluta,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.
Veður Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Innlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Innlent Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Innlent Vargöldin á Haítí versnar hratt Erlent Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Innlent „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Erlent Fleiri fréttir Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Sundhnúksgígaröðin að verða búin Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Fjölmiðlabann í kjaradeilu kennara Hildur hnýtir í Sigurð og sakar hann um ýkjur Straumar valda álagi á varnargarða og staðan viðkvæm Byggt og byggt á Suðurlandi og það þarf að byggja enn meira KÍ segir ummæli Ingu Rúnar „rannsóknarefni“ „Við gerum aldrei neitt nema með fullu samþykki“ Bein útsending: Hvar eru umhverfis- og loftslagsmálin í kosningabaráttunni? Kennarasambandið sýni kennurum „alvarlega lítilsvirðingu“ Sjá meira