„Óveður fram á kvöld“ Andri Eysteinsson skrifar 4. janúar 2020 11:38 Aðstæður til aksturs eru víða erfiðar. Vísir/Frikki
Eftir hádegi mun úrkoma snúast úr snjó yfir í rigningu. Mun þá vaxa í ám og lækjum og ágætt er að huga að niðurföllum til þess að tryggja að vatn eigi greiða leið þar um. Þetta segir Þorsteinn V. Jónsson, veðurfræðingur en rætt var við Þorstein í fréttum Bylgjunnar. „Vindur er vaxandi og kominn leiðinda skafrenningur og hálka á vegum hérna fyrir sunnan og við Faxaflóa. Það bætir í vind og veðrið nær hámarki undir hádegið,“ segir Þorsteinn. Spáð hefur verið slæmu veðri um land allt og eru appelsínugular viðvaranir í gildi víða á landinu. Þorsteinn segir að veður geti orðið hvað verst við Reynisfjall, Eyjafjöll, Hafnarfjall og á Kjalarnesi. „Einnig verður hvasst við norðanvert Snæfellsnesið í dag. Veðrið færist svo smám saman yfir allt landið en er verst við suður- og vesturströndina,“ segir Þorsteinn. Veðrið nær hámarki á suðurlandi og höfuðborgarsvæðinu nú undir hádegið, en Þorsteinn segir að bálhvasst verði á norður- og austurlandi seinna í dag og gengur þar yfir með snjókomu eða slyddu. Aö sögn Þorsteins má gera ráð yfir að veðrið verði allan daginn að ganga yfir landið. „Það má segja að það verði óveður fram á kvöld,“ segir Þorsteinn V. Jónsson veðurfræðingur.
Veður Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Innlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Innlent Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Innlent Vargöldin á Haítí versnar hratt Erlent „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Erlent Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Innlent Fleiri fréttir Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Sundhnúksgígaröðin að verða búin Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Fjölmiðlabann í kjaradeilu kennara Hildur hnýtir í Sigurð og sakar hann um ýkjur Straumar valda álagi á varnargarða og staðan viðkvæm Byggt og byggt á Suðurlandi og það þarf að byggja enn meira KÍ segir ummæli Ingu Rúnar „rannsóknarefni“ „Við gerum aldrei neitt nema með fullu samþykki“ Bein útsending: Hvar eru umhverfis- og loftslagsmálin í kosningabaráttunni? Kennarasambandið sýni kennurum „alvarlega lítilsvirðingu“ Sjá meira