Framhaldsskólanemar gefa stjórnvöldum falleinkunn Stefán Ó. Jónsson skrifar 14. ágúst 2020 11:51 Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra sést hér kynna úrræði fyrir námsmenn í kórónuveirufaraldrinum þann 13. maí síðastliðinn. vísir/vilhelm
Samband íslenskra framhaldsskólanema, SÍF, lýsir yfir vonbrigðum með að stjórnvöld hafi ekki birt skýra aðgerðaráætlun um hvernig kennslu í framhaldsskólum skuli háttað, nú þegar haustönn er um það bil að hefjast. Sambandið gagnrýnir samráðsleysi í faraldrinum og kallar eftir „aðgerðaráætlunum A, B og C“ frá stjórnvöldum þegar í stað. Fjármagnið þurfi jafnframt að fylgja. Vonir standa til að skólahald geti hafist með nokkuð eðlilegum hætti í haust með tilkomu nýju sóttvarnarreglnanna sem tóku gildi í dag. Meðal þess sem þær kveða á um eru eins metra fjarlægðarmörk í skólum og fyrir vikið geta skólastjórnendur boðið upp á aukið staðnám, eins og við fjölluðum um í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær. Samband íslenskra framhaldsskólanema segir þó enn mörgum spurningum ósvarað, nú þegar skammt er í að skólaárið hefjist. „Nemendur hafa leitað upplýsinga hjá sínum skólum en fátt er um svör sem veldur þeim bæði vanlíðan og kvíða. Það er sannarlega ekki á stöðuna bætandi þegar nýjustu fréttir herma að bið eftir sálfræðitíma á heilsugæslunni er allt að þrír mánuðir, tæplega ein skólaönn,“ segir í yfirlýsingu frá sambandinu. SÍF segist hafa nokkurn skilning á því ástandi sem skapaðist í skólum landsins í vor, þegar faraldurinn og meðfylgjandi takmarkanir skullu á með stuttum fyrirvara. Engu að síður hafi fjarkennslu víða verið ábótavant og aðgengi nemenda að kennurum afar misjafnt, að sögn sambandsins. „Þá voru í einhverjum tilfellum gerðar auknar kröfur til nemenda í lokaprófum, sem öll voru tekin á netinu, með þeim rökum að nemendur gætu kíkt í bækurnar. Það láðist hinsvegar að taka inn í myndina að margir höfðu haft mjög skertan aðgang að kennurunum sínum síðustu sex vikurnar fyrir próf.“ Önnur staða sé hins vegar uppi nú að mati SÍF enda hafi öllum mátt vera ljóst að veiran gæti skotið upp kollinum aftur. „Kalla nemendur því eftir aðgerðaráætlunum A, B og C frá stjórnvöldum þegar í stað sem skólastjórnendur og kennarar geta stuðst við, hvort sem kennt verður í skólabyggingum eða fjarkennslu.“ Menntaskólinn á Akureyri.vísir/vilhelm Óttist smit og mæti ekki Þá segist SÍF vilja sjá að nemendum verði leyft að velja hvort þeir mæti í tíma eða séu í fjarfundarbúnaði - „því þótt einhverjir fagni því að skólar haldist opnir með eins metra reglunni, að minnsta kosti enn um sinn, þá eru aðrir nemendur sem óttast smit í fjölmenni og mun því ekki mæta í skólann á meðan ástandið varir. Hættan er jafnvel sú að þeir muni aldrei mæta aftur.“ Þessu til stuðnings bendir SÍF á tölur Hagstofunnar sem gefa til kynna að tíunda hvert 19 ára ungmenni sé hvorki í vinnu né skóla. „[T]elur SÍF að það hljóti að vera markmið stjórnvalda að lækka þá tölu með öllum ráðum og dáðum.“ Sambandið segist jafnframt kalla eftir því skoðað verði með hvaða hætti stjórnvöld og skólakerfið brugðust við í vor og bera það saman við bæði einkunnir nemenda og brottfallstölur. Leiða megi að því líkum að ákveðinn hópur framhaldsskólanema skili sér ekki aftur í skólana í haust vegna fjárhagsörðugleika „eftir litla vinnu í sumar og þegar hvorki er í boði að taka námslán né fá atvinnuleysisbætur,“ að sögn SÍF. Menntaskólinn við Hamrahlíðmh Fjármagn þurfi að fylgja Það sé því mat Sambandsins að brýnt sé að auka fjármagn til framhaldsskólastigsins og nefnir eftir ástæður: Tryggja að fjarkennsla verði eins og best verður á kosið og hægt verði að bjóða nemendum uppá val um skólasókn eða fjarkennslu. Tryggja að iðn- og verknemar geti haldið áfram sínu námi námi og boðið verði upp á nýja möguleika fyrir þá sem misst hafa starfssamninga. Mæta þörfum nemenda í minnihlutahópum, svo sem nemenda af erlendum uppruna, nemenda með fatlanir og nemenda með sértæka námsörðugleika. Efla sálfræðiþjónustu innan framhaldsskólanna til muna. Veita útskriftarnemum aukinn stuðning á lokametrunum. Taka vel á móti nýnemum í nýju umhverfi á erfiðum tímum. Tryggja að hver og einn framhaldsskóli sé undir það búinn að færa kennslu alfarið yfir í fjarnám með stuttum fyrirvara, komi upp aðstæður sem krefjast þess. Rjúfa félagslega einangrun nemenda. „SÍF gerir þær kröfur fyrir hönd framhaldsskólanema landsins að stjórnvöld séu með sýnilega áætlun, ekki bara miðað við núverandi aðstæður, heldur einnig breyttar aðstæður, allskonar aðstæður, því Covid 19 er allskonar. Það er engin áætlun að treysta bara á að allir geri sitt besta til að hlýða Víði.“
Skóla - og menntamál Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Samkomubann á Íslandi Mest lesið Sakar Helgu um „helvítis lygar“ Innlent Mexíkó og Kanada svara tollum Trump með sínum eigin Erlent „Þetta kemur auðvitað bara mjög illa við fjölskyldulífið“ Innlent Hviður yfir 40 metra á sekúndu á morgun Veður Grunur um matarborna sýkingu á þorrablóti Innlent Óbreytt staða í Karphúsinu Innlent Stórhríð og foktjón í vændum Veður Vont veður geti stytt tíma til rýmingar Innlent Hættir sem formaður Siðmenntar Innlent Segir ljóst að Sigurjón skorti hæfi Innlent Fleiri fréttir Fundi slitið og verkföll hefjast á morgun Segir úlfalda gerðan úr mýflugu Rof á þjónustu við fatlaða opinberi slæma forgangsröðun stjórnvalda Góð samskipti við Bandaríkin gríðarlega mikilvæg 100 gráðu heitt vatn fannst í Reykholti í Bláskógabyggð „Þetta kemur auðvitað bara mjög illa við fjölskyldulífið“ Tollastríð, kennaraverkfall og hamborgarar Grunur um matarborna sýkingu á þorrablóti Vont veður geti stytt tíma til rýmingar Óbreytt staða í Karphúsinu Hættir sem formaður Siðmenntar Sakar Helgu um „helvítis lygar“ Um 500 nýjar íbúðir byggðar í Árnesi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi Grænlendingar í sókn frekar en vörn þökk sé Trump Þung staða og „ekki hægt að útiloka“ verkföll í fyrramálið Hvað þýðir tollastríð Trumps fyrir Ísland? Hagræðingartillögur, styrkir til flokkanna og Grænland á Sprengisandi Ók á móti umferð á flótta frá lögreglunni Segir ljóst að Sigurjón skorti hæfi Ógnaði fólki með barefli í bænum Pálína 84 ára stendur vaktina alla daga á Landvegamótum Kennarar með viðbótarkröfur og fundi frestað Klakastykki stórskemmdi bíl Áfram óvissustig á Austfjörðum en aflétt á Vesturlandi Ærandi þögn í Karphúsinu, fangaskipti og biðlistar sem lengjast Íslendingar fá leiðbeiningar um viðbrögð við stríði Viðræður á viðkvæmu stigi og fjölmiðlafólki hent út Loðnuleitin skilaði enn lægri mælingu og engar veiðar ráðlagðar Annasamt hjá björgunarsveitum vegna ofsaveðurs Landsvirkjun leitar að gistingu á Suðurlandi Sjá meira