Innlent

Fjórir greindust innanlands

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Fjórir greindust með kórónuveiruna innanlands.
Fjórir greindust með kórónuveiruna innanlands. Vísir/Vilhelm

Fjórir greindust með kórónuveiruna sem veldur Covid-19 innanlands í gær og greindust þeir allir hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans. Enginn greindist með virkt smit á landamærum samkvæmt nýjum tölum á covid.is.

667 sýni voru greind á sýkla- og veirufræðideild Landspítala og 2.115 á landamærunum. Þá voru 523 sýni greind hjá Íslenskri erfðagreiningu. Samkvæmt upplýsingum á covid.is eru 115 í einangrun og batnaði tveimur milli daga. 766 eru nú í sóttkví og fækkaði þeim töluvert á milli daga.

Einn liggur nú á sjúkrahúsi og einn á gjörgæslu.

Enn eru virk smit í öllum landshlutum, langflest á höfuðborgarsvæðinu. Þar eru einnig langflestir, eða 547, í sóttkví. Þar á eftir kemur Suðurland, þar sem 98 eru í sóttkví eins og í gær.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur er 24,8 eins og í gær. Þá er nýgengi landamærasmita 4,6 eins og í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×