Innlent

Grind­víkingar halda ró sinni í hættu­á­standi

Telma Tómasson skrifar
Grindvíkingar eru vanir jarðhræringum, einkum síðustu mánuði.
Grindvíkingar eru vanir jarðhræringum, einkum síðustu mánuði. Vísir/Egill

Hundruð tilkynninga um jarðskjálfta við Grindavík hafa borist Veðurstofu Íslands, sá öflugasti var af stærðinni 5. Engin merki eru um gosóróa en tugir eftirskjálfta hafa mælst og er fylgst grannt með þróun mála. Grindvíkingar halda ró sinni, en hættuástand er þó viðvarðandi.

Hrinan hófst með snörpum jarðskjálfta sem mældist 5 að stærð við Fagradalsfjall á Reykjanesi um tuttugu mínútur í miðnætti í gærkvöldi og fannst hann vel á mjög stóru svæði; á Suðurnesjum, víða á höfuðborgarsvæðinu, austur að Vík í Mýrdal, sem og á Akranesi á Vesturlandi.

Þetta er ekki óvenjulegt, að sögn Salóme Jórunnar Bernharðsdóttur náttúrvársérfræðings á vakt á Veðurstofu Íslands, einkum þegar um svo stóran skjálfta er að ræða.

„Við höfum fengið held ég, já, marga tugi ef ekki hundruð tilkynninga,“ segir Salóme.

Virkni á svæðinu var talsvert mikil frameftir nóttu, dvínaði aðeins um þrjúleytið, en styrktist aftur í morgunsárið um sexleytið, með tveimur skjálftum upp á 4,6 og 4,3 .Margir eftirskjálftar hafa mælst í kjölfarið, alls afa orðið 19 skjálftar stærri en þrír og segir Salóme virknina stöðuga áfram, þó hún fari eilítið dvínandi.

„Þetta er tengt landrisinu sem hefur verið við Þorbjörn að því leyti að við vorum að búast við því að sjá að virknin myndi hoppa á milli svæða á Reykjanesi og má segja að hún sé endurvakin, jarðskjálftavirkni á Reykjanesi, núna. Þetta er framhald af því. Við sjáum engan gosóróa, engin merki þess að kvika sé að brjóta sér leið upp á yfirborðið akkúrat núna. En þetta er náttúrulega eldvirkt svæði og það mun gjósa á Reykjanesinu einhvern tímann. En það eru engin merki um það að það sé akkúrat núna.“

Skjálftavirkni hefur verið viðvarandi á svæðinu í kringum Grindavík frá því í janúar, erfitt er að spá fyrir um framhaldið og áfram er grannt fylgst með.

„Jörðin er ekki undir okkar stjórn eins mikið og við vildum og við verðum bara að fylgjast með og svo bara kemur í ljós hvað gerist,“ segir Salóme.

Tilbúin til rýmingar

Grindvíkingar eru orðnir vanir því að jörð skjálfi, taka öllu með stóískri ró en hafa þó varann á. Bæjaryfirvöld fylgjast með gangi mála.

„Það er enn þá hættuástand núna og við erum með tengsl við Veðurstofuna ef eitthvað stærra gerist,“ segir Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnssýslusviðs Grindavíkurbæjar.

Hvað felur hættuástand í sér af ykkar hálfu?

„Í rauninni framhald frá því í janúar þá eru menn viðbúnir að þurfa að rýma, kannski aðallega út af eldgosi, en kannski ekki vegna jarðskjálfta,“ segir Jón.


Tengdar fréttir

Jarðskjálfti á Reykjanesi

Jarðskjálfti sem var fimm að stærð varð á Reykjanesi nú á tólfta tímanum, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×