Innlent

Telur að sam­eigin­leg ást­ríða fyrir Icelandair hafi verið lykillinn að nýjum samningi

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Aðalsteinn var að vonum ánægður með niðurstöðu fundarins, sem lauk með undirritun kjarasamnings.
Aðalsteinn var að vonum ánægður með niðurstöðu fundarins, sem lauk með undirritun kjarasamnings. Vísir/Vésteinn

Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari segist telja að sameiginleg ástríða Flugfreyjufélags Íslands og stjórnenda Icelandair fyrir félaginu hafi verið lykillinn að því að samningar milli aðila næðust. Kjarasamningur milli FFÍ og Icelandair var undirritaður í Karphúsinu í nótt, en í gær tilkynnti Icelandair um viðræðuslit og uppsagnir á öllum flugfreyjum og þjónum félagsins. Uppsagnirnar voru dregnar til baka samhliða undirritun samningsins.

Í samtali við fréttastofu í nótt sagðist Aðalsteinn alltaf hafa borið með sér þá von að aðilar myndu ná saman og undirrita samning. Samningur milli FFÍ og Icelandair var undirritaður 25. júní síðastliðinn, en félagsmenn Flugfreyjufélagsins kolfelldu þann samning.

„Þetta hafa verið erfiðar og þungar viðræður í langan tíma og mikið gengið á, en að sama skapi hafa líka verið hreinskiptin og opin samskipti og sem betur fer tókst okkur að setjast niður aftur og klára þetta,“ sagði Aðalsteinn og bætti við að fundurinn hefði verið mjög góður.

„Viðfangsefnin eru flókin en að sama skapi fann ég mjög sterkt í þessum viðræðum, jafnvel þó þær væru erfiðar, að það var mikil sameiginleg ástríða, beggja megin borðsins fyrir þessu félagi og mikill vilji til þess að standa við bakið á því. Það var það sem var driffjöðrin í þessum samningaviðræðum.“

Aðalsteinn vildi ekki tjá sig um hvort hann teldi að tilkynning Icelandair um viðræðuslit og uppsagnir hefðu þrýst enn frekar á að aðilar settust að samningaborðinu og kláruðu viðræðurnar með samningi.

„Eins og ég segi þá gekk á ýmsu en undir niðri voru alltaf þessu sameiginlegu hagsmunir af því að ljúka þessu með samkomulagi og þessi sameiginlegi vilji til að standa að baki félaginu. Það skiptir mestu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×