Martin Hermannsson á leið til Valencia á Spáni Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 9. júlí 2020 09:11 Martin færir sig um set til Spánar. Mike Kireev/Getty Images
Íslenski landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson hefur samið við Valencia á Spáni eftir frábært ár með Alba Berlín í Þýskalandi. Varð Martin lands- og bikarmeistari í ár. Lék hann að meðaltali 25 mínútur í leik, skoraði 10.9 stig og gaf 4.8 stoðsendingar. Þetta kemur fram á vefsíðunni Eurohoops þar sem segir að báðir aðilar hafi náð samkomulagi og hinn 25 ára Martin muni semja til nokkurra ára við félagið. Það á eftir að gefa út hversu langur samningurinn er. Martin er þriðji Íslendingurinn sem mun leika með Valencia en Tryggvi Snær Hlinason var í herbúðum liðsins frá 2017 til 2019 og þá var Jón Arnór Stefánsson hjá Valencia leiktíðina 2015-2016. Breaking: Valencia wins the race for Martin Hermannsson and signing him on a multi-year deal!— Varlas Nikos (@nikosvarlas) July 9, 2020 Valencia er eitt af stærstu liðum Evrópu og leikur í efstu deild á Spáni. Þá endaði í 10. sæti í EuroLeague í vetur. Það á að gera enn betur og því er Martin fenginn inn. Hann er annar leikmaðurinn sem liðið fær á skömmum tíma en Derrick Williams - sem var valinn annar í nýliðavali NBA-deildarinnar 2011 - mun einnig leika með liðinu á næstu leiktíð. Haukur Helgi Pálsson samdi í gær við Andorra, sem leikur einnig í spænsku úrvalsdeildinni. Þá er Tryggvi Snær enn í herbúðum Zaragoza.
Körfubolti Spænski boltinn Mest lesið Meistararnir gefa Trump „risastórt nei“ Sport Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar Körfubolti Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Körfubolti Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Körfubolti „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ Enski boltinn Sár Verstappen hótar sniðgöngu Formúla 1 Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Enski boltinn Haukur hlýddi Snorra strax og er á leið til Löwen Handbolti Aðrir í VIP-sætum þeirra sem skráðu söguna Körfubolti Sveindís fær engar skýringar: „Ég hef greinilega ekki verið í uppáhaldi“ Fótbolti Fleiri fréttir „Þetta er eins og að vera dömpað“ Aðrir í VIP-sætum þeirra sem skráðu söguna Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Sex fara fyrir Ísland á sitt fyrsta stórmót Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Martin komst í hóp þeirra gömlu og mjög góðu Popovich kemur ekki til baka á þessu tímabili Loksins fékk Lakers að sjá Luka eins og við þekkjum hann Kári kemur inn í hópinn gegn Tyrkjum Uppselt á körfuboltalandsleikinn á morgun Ruglaðist á Tramadol og Toradol og féll á lyfjaprófi Slagur um stól formanns KKÍ LeBron með fjörutíu stig í fjarveru Doncic: „Hann storkar lögmálunum“ Fær ekki að spila á Íslandi vegna gamals dóms: „Ekki ógn við þjóðina“ Bætti skólamet pabba síns Undrið Wembanyama frá það sem eftir lifir leiktíðar Martin: Skemmtilegra að tryggja þetta fyrir fullri höll Uppgjör: Ungverjaland - Ísland 87-78 | Afleitur annar leikhluti mjög dýr Verður aðeins sá átjándi til að spila níutíu landsleiki Gætu tryggt EM sætið í kvöld: „Skrítin staða að vera í“ Fimm sigrar og eitt grátlegt tap í síðustu sjö landsleikjum Martins Fóturinn tekinn af körfuboltapabbanum kjaftfora Geta fagnað EM sæti þrátt fyrir tap: Fjórar leiðir inn á EM Stólarnir stríddu toppliðinu „Efri hlutinn gefur okkur smá andrými“ Uppgjörið: Hamar/Þór - Valur 83-89 | Valskonur tryggðu sér sæti í efri hlutanum Sjá meira