Rekin eftir að hafa neitað að sofa hjá þjálfaranum Anton Ingi Leifsson skrifar 8. júlí 2020 11:30 Milica Dabovic er lengst til hægri á myndinni, númer þrettán. vísir/getty
Milica Dabovic gekk í gegnum margt og mikið á sínum körfuboltaferli en hún lagði skóna á hilluna fyrir fjórum árum síðan. Í nýrri bók skrifar Serbinn um reynslu sína í körfuboltaheiminum en hún vann til bronsverðlauna með Serbíu á Ólympíuleikunum árið 2016. Eftir það fóru skórnir upp í hillu. „Ég skrifaði undir samning. Þegar ég byrjaði hjá félaginu fékk ég símtal frá stjóranum og hann vildi fara í rúmið með mér. Ég neitaði og yfirgaf félagið,“ sagði Milica í samtali við serbneska vefinn Alo. Þetta er ekki í eina skiptið sem háttsettir menn innan körfuboltaliðs sem Milica hefur spilað hjá, hafi viljað hitta hana fyrir utan körfuboltavöllinn, því í bók sinni skrifar hún um aðra svipaða sögu. Síðar á ferlinum var hún rekin eftir að hafa neitað að fara heim með einum þjálfara félags sem hún spilaði hjá og fékk hún ekki greidd laun fyrir þann tíma sem hún var hjá félaginu. „Ég er glöð að það gerðist ekki [að hafa sagt já við þjálfarann]. Ég er með góða samvisku og get horft á mig í spegli án vandræða,“ sagði körfuboltakonan. Milica var fyrirliði serbneska landsliðsins sem vann gull á EM 2015 en hún spilaði frá árinu 1998 til 2016. Hún náði að spila með átján félögum.
Körfubolti Mest lesið Vandræði KR við nýja völlinn: „Hér var bara mýri og ruslahaugur“ Íslenski boltinn Leik lokið: Tindastóll - Álftanes 100-78 | Ótrúlegur sigur Stólanna Körfubolti Leik Alberts og öllum öðrum á Ítalíu frestað vegna andláts páfa Fótbolti Leik lokið: Þór/KA - Tindastóll 2-1 | Endurkoma í Boganum Íslenski boltinn Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Enski boltinn Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Enski boltinn Valur og KR unnu Scania Cup Körfubolti Dagskráin í dag: Íslenskt góðgæti með erlendu kryddi Sport „Hagsmunum félagsins best borgið með sölu á leikmanninum“ Íslenski boltinn Uppgjörið: FHL - Valur 0-2 | Valskonur sóttu þrjú stig austur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Stjarnan - Grindavík | Hörkueinvígi hefst Leik lokið: Tindastóll - Álftanes 100-78 | Ótrúlegur sigur Stólanna Valur og KR unnu Scania Cup Warriors vann leik sem var eins og frá 1997 „Langaði að bæta nálgun mína á körfubolta“ Doncic og James byrjuðu á tapi á heimavelli Hamar í góðum málum og Breiðablik jafnaði metin „Flæðið í sóknarleiknum var frábært“ Uppgjörið: Haukar - Valur 101-66 | Haukar völtuðu yfir Val í fyrstu rimmunni „Fráköstin hjá okkur voru hræðileg“ Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 95-80 | Yfirburðir í fráköstum og Njarðvíkingar leiða „Við Em erum miklu stærri en þær allar“ Martröðin fullkomnuð fyrir Mavericks Veðbankar vestanhafs halda með mótherjum Lakers KR einum sigri frá því að komast upp í Bónus-deildina Brynjar Karl tekur slaginn og segist ætla að bjóða sig fram sem forseta ÍSÍ Haiden Palmer kemur aftur til Íslands en nú sem þjálfari Garðabæjargrýla Grindvíkinga hefur stækkað og stækkað í 86 mánuði Lagði egóið til hliðar fyrir liðið „Ég er alltaf stressuð“ Dallas og Miami enn á lífi í umspili NBA „Skitum á okkur í þriðja leikhluta“ „Fáránlega erfið sería“ Háspenna í umspili um sæti í Bónus deildinni Uppgjörið: Haukar - Grindavík 79-64 | Haukar númeri of stórar Svona eru undanúrslitin: Ballið hefst á tvíhöfða annan í páskum Versta úrslitakeppnin í sögu Reykjanesbæjarliðanna Butler og Curry í stuði þegar Golden State komst í úrslitakeppnina Luka fyrstur til að skáka Steph og LeBron í meira en áratug „Holan var of djúp“ Sjá meira