Viðskipti innlent

Ekki tekist að ráða í öll sumar­störfin fyrir náms­menn

Atli Ísleifsson skrifar
Haft er eftir Ásmundi Einari Daðasyni félags-og barnamálaráðherra að nú þegar myndin sé að skýrast sé það mikið gleðiefni að tekist hafi að skapa það mörg störf að þau ganga ekki út.
Haft er eftir Ásmundi Einari Daðasyni félags-og barnamálaráðherra að nú þegar myndin sé að skýrast sé það mikið gleðiefni að tekist hafi að skapa það mörg störf að þau ganga ekki út. Vísir/vilhelm

Eftirspurn námsmanna eftir sumarstörfum, sem sköpuð voru í sérstöku átaksverkefni stjórnvalda, hefur verið töluvert minni en vísbendingar voru um að yrði.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félagsmálaráðuneytinu. Alls hafi sveitarfélögum landsins verið veitt heimild til að ráða í 1.700 störf í sumar, en ekki hafi tekist að ljúka ráðningu nema í tæplega 1.450 af þeim þar sem margir umsækjenda höfðu þegar fengið vinnu annars staðar.

Hver sóttu um sjö störf að meðaltali

Umsóknarfresti er sömuleiðis lokið hjá stofnunum ríkisins og svo lokatölurnar þar á þann veg að 1.510 námsmenn sóttu um þau 1.500 störf sem í boði voru og hafi hver námsmaður sótt um tæplega sjö störf að meðaltali.

„Þrátt fyrir að ekki sé búið að úthluta þessum störfum er ljóst að ekki mun takast að fylla í þau vegna þess að margir námsmenn eru þegar komnir með vinnu.

Það hefur komið sveitarfélögum og opinberum stofnunum á óvart hversu margir námsmenn voru búnir að ráða sig í vinnu þrátt fyrir að hafa sótt um störf sem búin voru til í átakinu. Því er ljóst að staða námsmanna á vinnumarkaði er umtalsvert betri en forystufólk námsmanna hefur talið hingað til, en alls er um 500 störfum, sem búin voru til í tengslum við átakið, óráðstafað og líkur á því að þeim fjölgi nokkuð þegar vinnu við umsóknir um störf hjá opinberum stofnunum lýkur,“ segir í tilkynningunni.

Ráðherra segir það gleðiefni að störfin gangi ekki út

Haft er eftir Ásmundi Einari Daðasyni félags-og barnamálaráðherra að nú þegar myndin sé að skýrast sé það mikið gleðiefni að tekist hafi að skapa það mörg störf að þau ganga ekki út. 

„Við fórum af stað með 3.400 ný sumarstörf fyrir námsmenn í fyrstu lotu, og vorum tilbúin að bæta enn frekar í ef aðstæður kölluðu á það. Við sjáum hins vegar á þessum tölum að eftirspurn námsmanna í þessi störf er minni en gert var ráð fyrir, og því ekki þörf á að skapa fleiri tímabundin störf í sumar,” segir Ásmundur Einar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×