Real Madrid sannfærandi í sigri á Valencia | Sjáðu magnað mark hjá Benzema

Ísak Hallmundarson skrifar
Benzem fagnar markinu góða. 
Benzem fagnar markinu góða.  Stöð2sport/skjáskot

Real Madrid sýndu gæði sín þegar þeir keyrðu yfir Valencia í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Lokatölur voru 3-0 fyrir stórveldinu.

Valencia fékk vítaspyrnu á 21. mínútu en Spánverjanum Rodrigo brást bogalistin á punktinum og tókst ekki að koma gestunum yfir. 

Staðan var markalaus í hálfleik en á 61. mínútu kom markahrókurinn Karim Benzema Real Madrid yfir. Marco Asensio bætti við marki fyrir Madrídinga 13. mínútum síðar, á 74. mínútu og staðan orðin 2-0.

Á 86. mínútu var Benzema aftur á ferðinni þegar hann skoraði gjörsamlega sturlað mark, tók boltann á lofti og þrykkti honum upp í vinkilinn. Sjón er sögu ríkari en markið má nálgast hér að neðan.

Með sigrinum minnkaði Real forskot Barcelona á toppnum niður í tvö stig en Valencia situr í 8. sæti deildarinnar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira