Erlent

Ís­lands­vinurinn Whelan dæmdur í sex­tán ára nauðungar­vinnu í Rúss­landi

Atli Ísleifsson skrifar
Paul Whelan í haldi rússnesku lögreglunnar.
Paul Whelan í haldi rússnesku lögreglunnar. Getty

Dómstóll í Rússlandi dæmdi í dag Bandaríkjamanninn Paul Whelan til sextán ára nauðungarvinnu eftir að hann var sakfelldur fyrir njósnir.

Whelan, sem er fyrrverandi landgönguliði í bandaríska hernum, var handtekinn á hótelherbergi í Moskvu í desember 2018. Í fórum hans fannst minniskubbur með leynilegum nafnalista.

Whelan neitaði sök í málinu og taldi kubbinn innihalda ljósmyndir úr ferðalögum.

Fjölskylda Whelan sagði á sínum tíma að Whelan hafi verið í Rússlandi vegna brúðkaups og hann hafi reglulega ferðast til landsins.

Þegar málið Whelan kom upp vakti það athygli hér á landi að myndin sem notuð var af Whelan í heimspressunni var tekin í Breiðafirði þar sem sást til Klakkeyja og Hrappseyjar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×