Innlent

Ís­lenskir ferða­menn út um allt í upp­sveitum Ár­nes­sýslu

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Ásborg Arnþórsdóttir er ferðamálafulltrúi sveitarfélaganna fjögurra í uppsveitum Árnessýslu.
Ásborg Arnþórsdóttir er ferðamálafulltrúi sveitarfélaganna fjögurra í uppsveitum Árnessýslu. Magnús Hlynur

Mikill hugur er í þeim sem stunda ferðaþjónustu í uppsveitum Árnessýslu við að taka á móti þeim Íslendingum sem ætla að ferðast um svæðið í sumar.

Mikil aðsókn hefur verið á svæðið síðustu helgar og fólk er miklu duglegra að nota sumarbústaðina sína eftir að kórónuveiran kom til sögunnar.

Margar af helstu náttúruperlum landsins eru í uppsveitum Árnessýslu eins og Gullfoss og Geysir, Þingvellir, Þjórsárdalur, Kerið, Brúarhlöð og Skálholt svo einhverjir staðir séu nefndir.

Ásborg Arnþórsdóttir er ferðamálafulltrúi sveitarfélaganna fjögurra í uppsveitum Árnessýslu.

„Góðu fréttirnar eru þær að undanfarnar helgar þá hefur verið mjög mikið af fólki hérna á ferðinni og við sjáum fram á að það haldi áfram. Fólk er að nota bústaðina sína miklu meira heldur en áður og fólk er að fara í bíltúr til að skoða náttúruperlurnar okkar og njóta eftir alla inniveruna, menn voru farnir að þrá það að komast aðeins út í sveitina“.

Ásborg Arnþórsdóttir, sem er ferðamálafulltrúi sveitarfélaganna í uppsveitum Árnessýslu en það eru Grímsnes og Grafningshreppur, Bláskógabyggð, Hrunamannahreppur og Skeiða og Gnúpverjahreppur.aðsend

En eru þeir sem stunda ferðaþjónustu í uppsveitunum tilbúnir til að taka á móti Íslendingum í sumar?

„Já, fólkið er mjög tilbúið og margir búnir að breyta hlutunum aðeins hjá sér og sveigja sig í áttina að því. Maður heyrir líka að Íslendingar margir hverjir eru að uppgötva landið sitt, það eru ekkert allir sem hafa verið að ferðast mikið innanlands, þeir stukku alltaf til útlanda og þetta varð einhvern veginn eftir,“ segir Ásborg.

En hvað heldur Ásborg með 15. júní þegar við opnum landið á ný, heldur hún að útlendingar verið duglegir að koma til Íslands í sumar?

„Það er stóra óvissan, ég er ekki mjög bjartsýn á það, ég held að heimurinn sé allur í þeirri óvissu að menn fari sér hægt. Við eigum eftir að sjá ferðamenn aftur, það er engin hætta á öðru á Íslandi en það á eftir að taka svolítinn tíma að fá fólk til að ferðast aftur um heiminn en þegar þar að kemur, þá er ég viss um að Ísland verður ofarlega á lista út af öryggi, hreinleika og öllu því, menn eiga eftir að vanda valið hvert þeir fara“, segir Ásborg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×