Madrídingar með sannfærandi sigur á Eibar

Ísak Hallmundarson skrifar
Real Madrid CF v FC Barcelona - La Liga

Real Madrid vann þægilegan sigur á Eibar í spænsku Úrvalsdeildinni í kvöld. Með sigrinum minnkaði Real forskot Barcelona á toppnum niður í tvö stig.

Toni Kroos gaf tóninn fyrir Real þegar hann skoraði strax á 4. mínútu leiksins. Fyrirliðinn Sergio Ramos bætti við öðru marki á 30. mínútu og 37. mínútu var staðan orðin 3-0 þegar Marcelo kom boltanum í netið.

Seinni hálfleikur var öllu rólegri og Pedro Bigas minnkaði muninn fyrir Eibar á 60. mínútu. Það reyndist síðasta mark leiksins, lokatölur auðveldur 3-1 sigur Real Madrid. 

Eftir leikinn er Real í öðru sæti, tveimur stigum á eftir toppliði Barcelona, en Eibar er í 16. sæti, tveimur stigum frá fallsæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira