Hætta framleiðslu vinsælla lögregluþátta Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 11. júní 2020 20:00
Framleiðslu á bandarískum sjónvarpsþáttum þar sem fylgst var með störfum lögreglu hefur verið hætt eftir að upp komst um að framleiðendur eyddu myndefni sem sýndi lögregluþjóna drepa svartan karlmann. Upprunalega höfðu stjórnendur sjónvarpsstöðvarinnar A&E sagt að framleiðslu þáttanna, Live PD, yrði slegið á frest vegna þeirra mótmæla gegn lögregluofbeldi sem standa nú yfir í Bandaríkjunum vegna dauða George Floyd, svarts manns sem lögregluþjónn er sakaður um að hafa myrt. Nú hefur framleiðslu þáttanna hins vegar alfarið verið hætt. Myndband af atvikinu sýnir lögregluþjóna í Texas handtaka mann að nafni Javier Ambler í mars á síðasta ári vegna þess að hann slökkti ekki á háu ljósunum á bifreið sinni. Heyra má Ambler tjá lögreglu að hann sé hjartveikur og geti ekki andað, rétt eins og George Floyd, á meðan lögregla skýtur hann ítrekað með rafstuðbyssum. Dagblaðið Statesman birti í gær afrakstur rannsóknar sinnar á málinu, meðal annars myndbandið af atvikinu sem fékkst afhent á grundvelli upplýsingalaga í Texas.
Dauði George Floyd Bandaríkin Mest lesið Bilun í stofnneti Ljósleiðarans Innlent Adolescence gott samfélagsinnlegg en ekki góð forvörn Innlent „Ekki kynnst alvöru málþófi ef þau telja þetta vera mikið málþóf“ Innlent Landlæknir varar við sýningu Adolescence-þáttanna Innlent „Skýr skilaboð“ Íslands og skilningur ESB en engar tryggingar Innlent Hryssurnar lamdar, ýtt í þær með prikum og þær beittar afli Innlent Mótmæli við leik Íslands og Ísrael Innlent Gæti þurft að reisa varnargarða á höfuðborgarsvæðinu Innlent Dæmdir í tengslum við einn stærsta stuld Íslandssögunnar Innlent Albanska manninum fylgt úr landi í fyrramálið Innlent Fleiri fréttir Kynntu „sterka stjórn sem er fær um aðgerðir“ Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Sjá meira