Innlent

Tripical-deilan komin á borð lögmanna

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Elísabet Agnarsdóttir er eigandi Tripical.
Elísabet Agnarsdóttir er eigandi Tripical. SKJÁSKOT ÚR FRÉTT

Eigandi ferðaskrifstofunnar Tripical er ósammála um að henni beri skylda að endurgreiða nemendum Menntaskólans á Akureyri útskriftarferð þeirra. Málið er komið í hendur lögmanna og foreldri skoðar að höfða dómsmál.

Í gær sendi Tripical póst á útskriftarnema við MA þar sem fram kom að þeir hefðu sólarhring til að ákveða hvort þeir væru reiðubúnir til að fara í áætlaða útskriftaferð til Ítalíu næstkomandi mánudag. Nemendurnir höfðu ekki gert ráð fyrir öðru en að hætt yrði við ferðina vegna kórónuveirufaraldursins.

Í nóvember bókuðu og greiddu hátt í 180 nemendur skólans útskriftarferð til Ítalíu þann 8. júní í gegnum Tripical. Greiddi hver og einn nemandi 200 þúsund krónur fyrir.

Davíð Rúnar Gunnarsson er foreldri nemanda í Menntaskólanum á AkureyriSKJÁSKOT ÚR FRÉTT

„Þarna erum við að tala um krakka sem eru jafnvel búnir að spara fram og til baka í allan vetur. Eru í aukavinnu og öðru. Þegar heimsfaraldurinn stóð sem hæst þá sá maður að ekki yrði farið í þessa ferð,“ sagði Davíð Rúnar Gunnarsson, foreldri nemanda Menntaskólans á Akureyri.

Í pósti sem Tripical sendi útskriftarnemum í dag kemur fram að ferðaskrifstofunni sé mögulegt að efna samninginn með brottför á morgun sé það vilji hópsins.

Póstur sem Tripical sendi á nemendur Menntaskólans á Akureyri í dag.SKJÁSKOT ÚR FRÉTT

Eigandi Tripical segir ljóst eftir daginn að það sé ekki vilji hópsins að fara í ferðina. Því bjóði Tripical upp á aðra kosti, m.a. inneign.

„Á meðan við getum efnt okkar samninga þá getum við ekki og erum við ekki að fara að endurgreiða,“ sagði Elísabet Agnarsdóttir, eigandi ferðaskrifstofunnar Tripical.

Þau telja að það sé skýlaus réttur til endurgreiðslu, ert þú ósammála því?

„Við erum ósammála því. Okkar lögmenn eru ósammála því. Á meðan við getum efnt ferðina,“ sagði Elísabet.

Elísabet segir að MA sé ekki eini skólinn sem á bókaða útskriftarferð í gegnum ferðaskrifstofuna. Gæti þurfi hagsmuna allra. Ef endurgreiða ætti öllum nemendum færi ferðaskrifstofan í þrot.

„Það eru tveir ef ekki þrír lögfræingar sem eru búnir að hafa samband við okkur og vilja taka málið að sér,“ sagði Davíð.

Þú segist klár í slaginn. Kemur til greina að höfða dómmál?

„Að sjálfsögðu,“ sagði Davíð.

Hilmar Garðar Þorsteinsson, lögmaður á Málsvara Lögmannsstofu hefur tekið að sér að endurheimta greiðslur fyrir hönd systkina í skólanum. Hefur hann sent út stefnuviðvörun. Ef ekki verður endurgreitt verður málinu stefnt fyrir dóm.

„Við þurfum bara að taka því. Ég skil þessa foreldra vel. Dómstólar eða lögmenn verða bara að finna út úr því,“ sagði Elísabet.


Tengdar fréttir

Tripi­cal mun ekki endur­greiða nem­endum MA vegna út­skriftar­ferðar

Ferðaskrifstofan Tripical mun ekki endurgreiða nemendum Menntaskólans á Akureyri vegna útskriftarferðar sem raskaðist vegna heimsfaraldurs. Formaður neytendasamtakanna segir að ferðaskrifstofunni beri að endurgreiða nemendum ferðina. Ferðafélag Menntaskólans á Akureyri hefur sett sig í samband við lögfræðing.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×